heilbrigðisþjónusta.
Forseti. Þegar ég kem að svona málum þá er það tvennt sem ég skoða aðallega. Sem meðlimur í fjárlaganefnd skoða ég oft mat á áhrifum og þarna er matið upp á rúmlega 20 millj. kr. árlega. Þá vil ég skoða hvaða vandamál verið er að leysa fyrir 20 millj. kr. árlega. Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um það. Af lestri þessa frumvarps sé ég ekki nákvæma útlistun á því hvert vandamálið er. Ég sé umfjöllun um að það sé eitthvað sem þurfi að styrkja og efla o.s.frv., en ekki nákvæmlega hvaða vandamál á að leysa og af hverju þetta er lausn á því vandamáli. Ég tel að við eigum heimtingu á því að ráðherra útskýri fyrir okkur hvernig þetta fyrirkomulag, stjórn yfir Landspítalanum, leysir það vandamál sem er í gangi fyrir 20 millj. kr. árlega. Ég get fabúlerað um ýmiss konar vandamál sem hafa verið í umræðunni en það eru aðrar forsendur en við setjum í frumvarp, sérstaklega ríkisstjórnarfrumvarp, ekki bara einhverjar fabúleringar. Það hefur t.d. verið nefnt að Landspítalinn geti ekki haldið sig innan fjárheimilda. Þá spyr maður af hverju, en svörin eru tiltölulega ónákvæm. Svör eru yfirleitt mjög nákvæm frá Landspítalanum. Hvaða forsendur höfum við í fjárlaganefnd á þingi til að meta hvort þær útskýringar séu réttar eða ekki? Það er oft tiltölulega auðvelt að fullfjármagna einhverja verkefnaliði innan spítalans á kostnað annarra og láta þannig líta út fyrir að þeir séu vanfjármagnaðir. Við erum með dæmi frá Tryggingastofnun þar sem stofnunin fékk í fjárlögum 10 millj. kr. heimild á ári til að setja á stofn umboðsmann lífeyrisþega. Sá umboðsmaður er ekki enn orðinn til en það er samt verið að nota fjármagnið. Það er verið að nota fjármagnið í önnur verkefni, t.d. að bæta upplýsingasvið Tryggingastofnunar, en það eru bara að hluta til verkefni sem yrðu verkefni umboðsmanns lífeyrisþega. Maður sér alveg fyrir sér svona möguleika á að haga bókhaldinu þannig til þess að ákveðnir málaflokkar líti illa út á kostnað annarra. Ég hef ekki hugmynd um hvort það sé rétt eða ekki. Ég ætla að gera ráð fyrir að það sé ekki rétt en ég sé alveg hvernig hægt er að svindla á því. Með þann bakgrunn sem ég hef í gæðaeftirliti þá reyni ég alltaf að pota í það hvar sé mögulega hægt að svindla, ekki að það sé endilega verið að gera það heldur bara hvar sé möguleiki á því og þá er hægt að spyrja um það og sannreyna hvort það sé gert eða ekki. Þannig eigum við að vinna í gæðaeftirliti og í eftirliti með framkvæmd fjárlaga. Þannig gerum við það hins vegar ekki, sem er merkilegt út af fyrir sig. Mestur tíminn fer yfirleitt í lagasetningu en ekki í eftirlit með framkvæmd laga.
Þetta mál er dálítið svona kjarni þess sem er að í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur hér á þingi. Markmiðin, ástæðurnar fyrir því að við fáum einhver mál í hendurnar, eru yfirleitt mjög óljós. Markmiðið með þessu virðist vera „bara af því að það er í ríkisstjórnarsáttmálanum og það er verið að uppfylla hann“, hverjar svo sem ástæðurnar eru fyrir því að einhver vill fá stjórn yfir Landspítalann. Það eru ástæður sem ná ekki inn í stjórnarsáttmálann, þar er bara vilji. Og það eru alls ekki ástæður sem ná inn í frumvarpið. Það eru engar faglegar forsendur sem bætast þar við pólitíska viljann. Það finnst mér áhugavert því að um er að ræða pólitískan vilja sem kostar 20 millj. kr. á ári. Það er ekki flóknara en það. Það eru engar vangaveltur um það hvernig væri hægt að ná sama árangri með ódýrari lausnum, sem er einmitt ein af skilgreiningum á því hvernig á að fara í áætlanagerð samkvæmt lögum um opinber fjármál, sem þessi stjórn á að fylgja þegar verið er að setja upp áætlanagerð og þess háttar. Öll sú skylda sem lög um opinber fjármál setja á ráðherra og framkvæmdarvaldið er þegar til staðar í núverandi fyrirkomulagi sem er 20 millj. kr. ódýrara, svo að ég minnist á það aftur. En einhverra hluta vegna er það ekki gert. Er það kannski af því að það er skortur á faglegu aðhaldi? Gæti stjórnin verið til þess nákvæmlega? Ef svo er þá myndi maður halda að skyldur og ábyrgð stjórnarinnar væri betur skilgreind út frá því sjónarhorni, en það er það ekki. Það vantar.
Ég velti fyrir mér, eins og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson, þessari ábyrgðarkeðju. Alla jafna þá virkar ferlið hér nokkurn veginn þannig að það er ráðherra sem ber ábyrgð á öllu, ef við skoðum lög um ráðherraábyrgð. Það geta hins vegar komið upp ákveðnar aðstæður þar sem ráðherra treystir einfaldlega faglegri stjórnsýslu til að sinna þeim verkefnum sem Alþingi setur samkvæmt lögum. Það getur klúðrast á einhvern hátt, algerlega án aðkomu ráðherra. Ráðherra ber samt ábyrgð en ábyrgðin er tvímælalaust öðruvísi en ef ráðherra hefði skipt sér beint af þeirri framkvæmd sem klúðraðist. Það er mikill munur á slíkri ábyrgð. Ef ráðherra hlutast til um ákvarðanir framkvæmdarvaldsins um faglegt stjórnsýsluferli, eins og t.d. í Landsréttarmálinu, þá ber ráðherra algerlega fulla ábyrgð samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð. Ef ráðherra treystir einfaldlega faglegri stjórnsýslu til að fylgja lögum eins og gengur og gerist og það klúðrast eitthvað þá er samt mál höfðað gagnvart ráðherra sem ber vissulega ábyrgð en annars konar ábyrgð af því að viðkomandi ráðherra var einfaldlega sem staðgengill ábyrgðar fyrir hönd faglegrar stjórnsýslu. Það er ekkert að því, við erum með þetta nafnlausa embættismannakerfi.
Hérna erum við með einhvers konar dreifða ábyrgð því að sjálfsögðu taka forstjórar ríkisstofnana ákveðna ábyrgð á daglegum rekstri og framkvæmd ýmissa laga, þó að að lokum beri ráðherra á sama hátt ábyrgð á málaflokknum sem slíkum. En hér er einmitt verið að bæta inn stjórn þarna inni á milli sem ber ábyrgð gagnvart ráðherra á þeim ákvörðunum sem hún samþykkir. Hún tekur þá væntanlega ábyrgð frá forstjóra stofnunarinnar sem ber annars ábyrgð gagnvart ráðherra. En það er munur þar á milli þar sem forstjórinn ber ábyrgð samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins en ekki er ljóst að það eigi við um stjórnina, sem er áhugavert. Af hverju ekki? Ég hef ekki hugmynd um það. Er það þá í raun bara útþynning á ábyrgð? Það er eitt sem er rosalega mikilvægt, þegar er verið að fjalla um það hvernig ábyrgð virkar og hver ber ábyrgð, og það er að það sé skýrt hver beri ábyrgðina og hvernig ábyrgð viðkomandi er að axla í hvert skipti. Hvað þýðir það þegar stjórn samþykkir langtímastefnu eða t.d. ársáætlun og klúðrar því einhvern veginn? Hvers konar ábyrgð er það? Á að láta ráðherra vita? Kom röng greining úr einhverjum tölum um rekstur spítalans sem barst ráðherra? Hvernig er sú ábyrgð? Það eru ýmsir möguleikar þarna fyrir hendi og ég get ekki annað séð en að þetta sé útþynning á ábyrgð. Ef ráðherra eða forstjóri bæru þessa ábyrgð, eins og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eða ráðherraábyrgð kveða á um, væru ákveðnar afleiðingar en ef hún er sett svona á stjórn spítalans þá verða ekki sömu afleiðingar. Við verðum að átta okkur á því að ábyrgð fylgja afleiðingar ef um eitthvert klúður er að ræða. Annars þýðir það ekkert að taka ábyrgð og axla ábyrgð. Það er mjög algengt hjá Íslendingum, það eru allir að axla ábyrgð en fá þá aukapening og alls konar svoleiðis, hærri laun fyrir að axla mikla ábyrgð og svo þegar eitthvað klúðrast þá er sagt: Við verðum nú að sýna þessu skilning, þetta voru nú utanaðkomandi aðstæður og alls konar svoleiðis bull. Enginn ber ábyrgð er einhvern veginn þumalputtaregla í öllu hjá okkur, ekki bara í opinbera stjórnkerfinu heldur líka á einkamarkaði, á almenna markaðnum. Allir firra sig ábyrgð, alltaf.
Ég skil það að einhverju leyti að fólk reyni að dreifa ábyrgðinni, deili henni á einhvern hátt og finnst það óþægilegt að hafa klúðrað hlutum og þurfa að viðurkenna það og reyni eins og það getur að komast undan ábyrgð. En það er ákveðin menning. Ég held að það sé mjög slæm menning. Við förum einhvern veginn illa með ábyrgð, bara almennt séð, með því að hafa þessa menningu um að þumalputtareglan sé að allir firri sig ábyrgð en gangist ekki við henni. Ég tel að eina leiðin til þess að við þroskumst og lærum að takast á við verkefni og lærum að verða betri og gera betur sé einmitt að axla ábyrgð og viðurkenna ábyrgð. Þannig er hægt að halda áfram. Reyndin hefur verið, að því að mér finnst, mín skoðun, undanfarna áratugi þar sem ráðamenn hafa ítrekað firrt sig ábyrgð eða afsakað ábyrgð, farið í samtryggingu, varið vini sína sem augljóslega eru ekki að gera mjög gáfulega hluti — að það hefur grafið undan trausti. Það býr til þá ásýnd að það sé einhver elíta sem ver sig og sína. Það smitar. Af hverju á almennur borgari að axla einhverja ábyrgð ef ráðamenn geta það ekki einu sinni? Það býr til menningu flótta. Þess vegna tel ég að það sé nauðsynlegt að ábyrgðin sé skýr og það er ekki hægt að setja viðurkenninguna á því að axla ábyrgð í lög. Þetta er menningarlegt atriði. Þetta er eitthvað sem fólk þarf að hugsa með sjálfu sér og taka persónulega ábyrgð, taka persónulega ákvörðun um. Það er ekkert í lögum sem getur sagt einum né neinum að viðurkenna eitthvað sem klúðrast, en við getum reynt. Þau sem ættu að vera best í því að sýna hvernig á að gera það er einmitt fólk sem hefur svona ríka ábyrgð eins og ráðamenn, forstjórar ríkisstofnana og aðrir af því kalíberi. Eru með hærri laun af því að þau axla mikla ábyrgð.
Ég sé ekki vandamálið sem á að leysa með þessari breytingu. Ég sé ekki hvernig þetta er lausn á vandamáli sem ég hef ekki hugmynd um hvert er og ég sé ekki að þetta sé einu sinni góð leið til að breyta miðað við núverandi fyrirkomulag því þetta dreifir ábyrgðinni á einhvern hátt sem ég átta mig ekki á hvort sé í raun jákvætt fyrir menningu okkar og það hvernig ábyrgðarkeðjan virkar.