152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[16:47]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma inn á nokkur atriði. Ég hef verið að glugga í frumvarpið og ég velti fyrir mér: Er frumvarpið til þess fallið og er það lagt fram til þess að gera hlutina faglegri eða er það hugsað til að ná mögulega utan um að beisla einhvern forstjóra sem gæti verið með eitthvert vesen eða verið erfiður og fram til þessa dálítið einráður? Með þessu, verði frumvarpið samþykkt óbreytt, verður forstjórinn ekki æðsta vald heldur ber honum að leita ráða og álits fagráðs. Það er gott, myndi ég halda. Við viljum jú hafa belti og axlabönd í þessum málum. Það er kannski það sem hræðir okkur flest, held ég hljóti að vera, ef einhver er einráður, ef einhver einn ræður of miklu og getur gert nákvæmlega það sem honum sýnist. Mögulega halda honum engar hömlur og þá reynir heldur betur á hver er í embætti. Einræði, það að einhver sé einráður, er eitthvað sem við viljum helst ekki í lýðræðisríki.

Varðandi þetta skil ég það svo að ráðherra ráði því hvern hann skipar í stjórn en hann skipar líka þriggja manna nefnd sem metur hæfi umsækjenda. Ég er að hugsa: Er það þannig að ráðherra velur bara einhverja sem eru honum þóknanlegir sem ákveða síðan hver er hæfur og síðan skipar hann þann aðila? Er þetta ekki þá einfaldlega þannig að ráðherra er einráður, þegar ferlinu er lokið, um það hver verður fyrir valinu? Erum við með belti og axlabönd þarna?

Mig langar líka aðeins að víkja að fulltrúa starfsmanna í stjórninni sem hefur ekki atkvæðisrétt en hefur málfrelsi og tillögurétt, og auðvitað má þakka fyrir það. En af hverju hefur hann ekki atkvæðisrétt? Þetta eru starfsmennirnir, hvar væri heilbrigðisstofnunin án starfsmanna? Ég verð að segja að mér finnst þetta frekar niðurlægjandi gagnvart starfsfólkinu. Það er eins og því sé ekki treyst til að greiða atkvæði, til að geta myndað sér faglega skoðun og fengið að hafa atkvæðisrétt. Ef ég væri starfsmaður myndi ég upplifa að það væri niðurlægjandi. Það væri engin þjónusta í gangi og ekkert að ske ef heilbrigðisstofnunin væri ekki með fært starfsfólk.

Ef við horfum á starfsmannahópinn sem búinn er að heyja ótrúlega baráttu á þessu tveggja ára Covid-tímabili þá undrast maður eiginlega að hópurinn skuli standa uppi og hafi getað gert allt sem hann er búinn að gera. En áður fyrr, áður en Covid kom upp, var þessi hópur líka undir miklu álagi. Það eru mikil veikindi í þessum hópi og vanlíðan. Ég hef frétt af alls kyns erfiðum málum á Landspítalanum, mikið til vegna þess að ef fólki líður illa í vinnunni og er undir miklu álagi eru meiri líkur á alls kyns eineltistilburðum og annarri hegðun sem kemur til þegar ekki er nógu vel hlúð að starfsfólkinu. Ofan á þetta allt saman kemur svo: Ókei, þið fáið að taka þátt, en þið fáið ekki að greiða atkvæði. Þetta er ekki nógu gott. Mér finnst að þetta þurfi að endurskoða og breyta því þannig að nægilega mikil virðing sé borin fyrir starfsfólkinu og hægt sé að segja: Við treystum ykkur til að greiða atkvæði nákvæmlega samkvæmt ykkar sannfæringu.

Það er eitt og annað í þessu sem ég vil líka aðeins koma inn á, sem hefur reyndar verið talað dálítið um hér, það varðar ábyrgðina. Ég verð að segja að ég var ekki alveg með það á hreinu og þurfti eiginlega að lesa tvisvar og þrisvar allt um ábyrgðina til að skilja hver ber ábyrgð á hverju. Ég myndi t.d. vilja spyrja, af því að það stendur að forstjóri beri óskipta ábyrgð gagnvart ráðherra: Hvað nákvæmlega þýðir þessi óskipta ábyrgð? Ég myndi líka vilja koma aftur inn á það sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson nefndi áðan: Jafnvel þó að fólk klúðri í þessum æðstu stöðum þá vitum við vel að það er mjög sjaldgæft, ég man ekki eftir neinu tilfelli, að einhver þurfi að taka pokann sinn.

En hvað þýðir þegar sagt er „óskipt“? Ég myndi kannski vilja fá skilgreiningu á þessu. Síðan eru jú faglegir stjórnendur og þeir bera ábyrgð á faglegri þjónustu. Þá erum við sennilega að tala um aðgerðir og önnur læknisverk eða verkefni. Þetta er ekki alveg skýrt og ég verð að taka undir það sem áður hefur komið fram, það þarf einhvern veginn að skerpa á ábyrgðinni í frumvarpinu. Það eru þessir þrír punktar, þetta með að vera einráður og hafa þetta mikla vald. Er frumvarpið til þess ætlað að gera þetta faglegra og dreifa ábyrgðinni og valdinu þannig að það sé enginn einn sem gerir einhverja hluti sem mögulega eru skaðlegir? Eða er þetta gert vegna þess að í ljósi sögunnar hefur fólki kannski þótt, ríkisstjórninni, að erfiðir einstaklingar væru þarna um borð sem væru bara með eitthvert vesen og eina leiðin til að losna við þá væri að bjóða þeim dýra starfslokasamninga eða eitthvað slíkt? Hvort heldur sem er vill maður samt sem áður sjá að þetta sé frekar ætlað til að gera hlutina faglegri og við séum að fara meira inn í lýðræði, þ.e. að fleiri komi að borðinu í stórum ákvörðunum.

Ég held að ég hafi farið yfir helstu punktana. Varðandi Landspítalann þá verð ég aldrei manneskjan sem stendur hér og segir að hægt sé að laga þetta allt. Hvað er málið hér? Af hverju er allt í klessu á þessum Landspítala? Er ekki bara hægt að græja þetta og gera þetta flott? Ég veit að það er ekki þannig. Þetta er gríðarlega flókið kerfi og erfitt og það er ekki bara hægt að segja: Ráðherra skal með einhverjum tveimur, þremur góðum ákvörðunum bjarga þessu og jafnvel þó að gríðarlegt fjármagn yrði veitt til viðbótar er ég ekki endilega að segja að allt verði gott eftir það. Þetta er flóknara en það. Ég ræddi einu sinni við lækni um þessi mál. Ég sagði: Hvað finnst þér um Landspítalann, af hverju er alltaf þetta eilífa vandamál, alltaf er þetta allt svona hræðilegt, tóm rúm og fjármálin öll í klessu? Þessi læknir var eilítið eldri en ég, var kominn aðeins á efri ár. Hann sagði: Já, Kolbrún mín, það verður ekki í okkar lífi sem þessi mál leysast. Þetta sat dálítið í mér svo að ég er alveg búin að sætta mig við að sennilega verður það ekki í mínu lífi sem málefni Landspítalans leysast. En hvað veit maður? Þetta er flókið og ég er ekki að fara að skamma einn eða neinn fyrir að hafa ekki verið búinn að græja þessi mál þannig að allir séu glaðir.

En ég vil sjá starfsfólkið ánægt. Ég vil að virðing sé borin fyrir starfsfólkinu sem er að leggja á sig gríðarlega vinnu, langt umfram það sem við getum talið eðlilegt fyrir manneskju sem vill líka eiga sitt daglega líf með fjölskyldu sinni og fá að sinna tómstundum. Ég vil að starfsfólkinu verði boðið að koma um borð, fulltrúa þess, og greiða atkvæði. Það er eitt. Ég vil líka geta hugsað að við séum að fara í átt að lýðræði og fagmennsku en þetta sé ekki bara gert vegna þess að erfið reynsla hafi sagt okkur að við þurfum að hemja einhvern óþekkan forstjóra eða eitthvað slíkt, án þess að ég hafi nokkra staðfestingu fyrir því.

Síðan væri auðvitað gaman að við gætum borið okkur saman við önnur lönd sem við viljum bera okkur saman við, en þar axlar fólk ábyrgð á mistökum sínum. Ef það gerir stór mistök í starfi þá tekur það einfaldlega pokann sinn. Það eigum við auðvitað að gera líka á háttvirtu Alþingi og í öðrum stjórnkerfum. Séu gerð mistök, hvort sem það er gagnvart lögum eða siðferðislega, dómsvald og annað slíkt þarf að koma þar inn, þá á fólk að víkja, það á að taka pokann sinn. Það er ekkert nema sjálfsagt. En slíkt er bara einsdæmi í okkar samfélagi. Ég held að það séu tveir eða þrír hér á Alþingi sem hafa einhvern tímann sagt af sér vegna einhvers slíks, ég er bara ekki alveg með það. En þetta er fáheyrt hér á landi. Við höfum bara alltaf verið svo fljót að gleyma, þjóðin. Því miður, ég veit ekki, verður það kannski ekki heldur í mínu lífi sem einhver breyting verður í þeim efnum.