152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

iheilbrigðisþjónusta.

433. mál
[17:21]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil einmitt spyrja hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur út í lokaorð hennar um hlutverk stjórnarinnar. Ég hef verið að velta fyrir mér yfirlýstu markmiðunum með því að setja þessa stjórn yfir Landspítala, eins og þau koma fram í greinargerð. Þar kemur fram, í II. kafla, á bls. 2., að frumvarpið sé liður í innleiðingu þeirra áherslumála sem fram koma í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs en í honum kemur fram að staða og hlutverk Landspítalans sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og sérstök áhersla er lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu- og bráðadeildar. Stjórn spítalans er ætlað að gegna stefnumarkandi hlutverki í þeirri þróun.

Við lestur greinargerðarinnar fæ ég ekki séð hvernig hlutverk þessarar stjórnar eða markmiðasetning hennar fer heim og saman við þetta markmið. Það er í raun ekkert minnst á það aftur. Þegar svo er farið að tala um stjórnina sjálfa og hverjir ættu að sitja í henni þá er eina dæmið sem ég finn að til standi að fara í einhvers konar innleiðingu á nýju fjármögnunarkerfi fyrir spítalann, framleiðslutengda fjármögnun — þetta kemur fram á bls. 5, neðst — og því megi ætla að fagþekking á slíkri fjármögnun sé mikilvæg fyrstu árin. En það er hvergi rökstutt hvernig þessi fagþekking á að ýta undir þessi markmið eða hvernig þessi stjórn á að uppfylla þau markmið að standa að þessari stefnumótun eða hvers vegna það að skipa stjórn yfir Landspítala á að bjarga bráðadeildinni í raun, eins og virðist vera markmiðið með þessu.

Ég tók eftir því áðan að hæstv. ráðherra vísaði í að þessi breyting (Forseti hringir.) á fjármögnun ætti að auka gagnsæi en ég velti fyrir mér hvernig hún styrkir bráðadeildir ef það er í raun markmiðið.