152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[17:24]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég sagði áðan er margt sem þarf að skoða og fara betur yfir. Ég sagði m.a. að skerpa þyrfti á hlutverki stjórnar og hvernig hún er skipuð. Ég ætla samt að segja að ég styð það yfirmarkmið ríkisstjórnarinnar, og það sem kemur fram í ríkisstjórnarsáttmálanum, að huga betur að hlutverkinu og styrkja spítalann sem okkar þjóðarsjúkrahús. Það er það sem mér finnst skipta svo miklu máli og að við — náttúrlega ekki bara komandi út úr Covid heldur að við sjáum hvað það skiptir máli fyrir okkur að vera með þjóðarsjúkrahúsið sterkt.

Það breytir ekki því að við verðum líka að horfast í augu við að það er eitthvað að í rekstrinum. Við þurfum að átta okkur á því hvernig við getum bæði nýtt fjármagnið betur og stutt betur við hið faglega starf. Það er þar sem ég sé tækifæri varðandi stjórnina, að hún geti einmitt styrkt stjórnendur spítalans betur, bæði faglega en líka rekstrarlega. Þetta fer saman. Gott rekstrarlegt umhverfi styður hið faglega og öfugt. Varðandi nýtt rekstrarmódel þá veit ég að það eru fleiri spítalar á Norðurlöndunum, ef það er skoðað sérstaklega, sem eru komnir ansi langt í því að innleiða ný rekstrarmódel til að mæta nýjum áskorunum í breyttum heimi þar sem tækninni fleygir ört fram.

Það þarf að breyta svolítið ferlum innan spítalans. Ég held að það séu ákveðin tækifæri fólgin í því. Vissulega er ákveðin vinna fram undan af hálfu velferðarnefndar en við megum heldur ekki gleyma því sem ég minntist aðeins á í upphafi, að eftir fimm ár, þegar við erum komin með nýja spítalann, þá sjáum við ákveðið samspil nýja spítalans, legudeildarinnar og þá vonandi líka bráðamóttökunnar og þeirra erfiðu verkefna sem þar eru núna. (Forseti hringir.) Það þarf að leysa þau tímabundið núna. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við þann vanda. En til lengri tíma sé ég fram á bjartari tíma hvað þetta varðar.