heilbrigðisþjónusta.
Herra forseti. Já, ég er sammála hv. þingmanni að það er gott markmið hjá ríkisstjórninni að hlutverk Landspítalans sem mikilvægustu heilbrigðisstofnunar landsins verði styrkt og að sérstök áhersla verði lögð á að fylgja eftir uppbyggingu gjörgæslu- og bráðadeildar. Það sem ég er kannski einna helst að gera athugasemd við er að mér finnst bara ekki fylgja neinn rökstuðningur fyrir því hvernig nákvæmlega þessi aðgerð verði til þess að það markmið verði uppfyllt. Það er mikið talað um að bæta rekstur og ýmislegt annað en það er enginn rökstuðningur fyrir því hvernig nákvæmlega þetta markmið skuli uppfyllt með skipun þessarar stjórnar. Ekki er talað um að fólk sem verður skipað þurfi að hafa þekkingu til að bera til að akkúrat þessi markmið náist, heldur er aðeins talað um breytingu á rekstrarmódeli sem gott og vel er kannski algerlega frábært og mögulega liður í þessu. Mér finnst bara svolítið skrýtið að lesa greinargerð sem segist vera með yfirlýst markmið en síðan er ekkert farið í að rökstyðja hvernig þessi aðgerð eigi að uppfylla þetta markmið. Það er kannski bara einhver kennari í mér sem veltir vöngum yfir því.
Þar sem hv. þingmaður veltir fyrir sér aðkomu starfsmanna langar mig að koma aðeins inn á það í þessu samhengi. Ég hefði einmitt haldið að við þyrftum meiri aðkomu starfsmanna að svona stjórn en minni vegna þess að ef markmiðið er að laga ástandið á bráðamóttökunni, sem við vitum að hefur verið mjög vont lengi og var vont fyrir heimsfaraldur, þá hlýtur starfsfólkið að vera hvað best til þess fallið að vinna í því að bæta þar úr, enda þekkir það best til þar. Ég velti því fyrir mér hvort ekki þurfi einmitt að styrkja aðkomu starfsfólks og gefa því meiri rödd í stjórn sem þessari.