152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[17:31]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langaði að halda áfram með boltann þar sem frá var horfið hér rétt áðan. Það var í tengslum við atvinnulýðræði, að starfsfólk sé hluti af stjórnum fyrirtækja. Almennt séð þar sem atvinnulýðræði hefur tíðkast þá hefur það sýnt sig að það eykur gegnsæi, það dregur úr spillingu. Það eykur líka framleiðni og orsakar betri anda og heilsu meðal starfsfólks. Hv. þingmaður nefndi það að ef starfsmenn væru hluti af stjórn gæti það þýtt að þeir bæru þá einnig ábyrgð á því sem stjórnin ákveður, sem gæti verið rangt. En mér er spurn hvort það sé ekki í rauninni líklegra hvað varðar stjórnarmenn, sem eru fulltrúar starfsmanna, að þátttaka starfsmanna leiði til betri ákvarðana og þar af leiðandi þurfi viðkomandi starfsmenn ekki að axla ábyrgð vegna slæmra ákvarðana. Mig langaði að heyra aðeins hvað hv. þingmanni finnst um þessar hliðar atvinnulýðræðis.