heilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið kannski af veikum mætti að reyna að benda á. Mér finnst ekki hægt að hafa skilyrði í lögunum þannig að við séum að takmarka þetta við mjög fámennan hóp, í rauninni takmarkaðan hóp. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni þegar hann sagði að það væri mismunandi þörf á þekkingu hverju sinni svolítið eftir því hver viðfangsefnin eru. Í dag eru viðfangsefnin önnur en þau voru bara fyrir þremur eða tveimur árum fyrir Covid. Eftir fimm ár verður þetta orðið öðruvísi líka af því að þá verðum við komin með nýjan spítala og það kallar á aðra nálgun. Þetta er eitt af þeim verkefnum sem bíður hv. velferðarnefndar, að flokka svolítið hvað það er sem við viljum. Við viljum hafa fólk með breiða skírskotun innan stjórnar, faglega, breiða og sterka skírskotun til þess hvernig við viljum byggja upp öflugt þjóðarsjúkrahús og standa vel að faglegum rekstri en líka fjárhagslegum rekstri. Þetta verður að fara saman. Það er engin skömm að því að tala um það að fara vel með fjármuni þegar við erum að ræða um velferðarkerfið eða menntakerfið og líka faglega aðkomu. Þetta fer saman.
Ég vil bara undirstrika að ég tel að fagleg og rekstrarlega sterk stjórn yfir Landspítalanum yrði ákveðið gæfuspor. En það þarf að vinna málið mun betur heldur en það er lagt fram núna og ég veit að bæði ráðherra og aðrir hér inni hafa metnað til að útbúa málið þannig að það geri það sem á að gera, þ.e. gera gott sjúkrahús enn betra og sterkara fyrir fólkið í landinu.