Áheilbrigðisþjónusta.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get tekið undir það. Ég tel að hann hafi tekið undir þær vangaveltur sem ég velti upp í máli mínu hér áðan. Mér finnst liggja ákveðinn óskýrleiki þarna á milli. Það vantar skýrleika þarna á milli. Það verður að vera alveg klárt, alveg sama í hvaða einingu það er, hvort sem það er í fyrirtæki, hjá okkur í þinginu eða hvar sem er, að það verður að vera skýr verkaskipting. Þess vegna vara ég við því að þegar ég les frumvarpið finnst mér vera í því ákveðin mótsögn yfir verkaskiptingu forstjóra og svo verkaskiptingu stjórnar sem snertir síðan ráðherra. Þetta getur kallað á ákveðinn vanda. Þess vegna erum við í stórkostlegu færi til að gera vel, til að taka utan um spítalann, sem ég tel að þjóðin sé að kalla eftir að við gerum. Þetta frumvarp er liður í því að bæta starfsemina. Þess vegna skulum við bara vanda okkur í þeirri vinnu. Ég er alveg sannfærð um það að ráðherra er mjög mikið í mun að gera það. Við skulum — eins og við erum að gera hér, við erum að ræða hér, við erum að kasta á milli okkar hverjir helstu annmarkar eru — við skulum halda því áfram. Ég vona svo sannarlega að okkur farnist það í þessari vinnu að skila góðu dagsverki sem mun verða forstjóra spítalans mikill akkur í hans störfum þannig að spítalinn geti bætt sig enn frekar.