heilbrigðisþjónusta.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka þessa umræðu. Fyrsta umræða um mál hefur oft verið gagnleg og góð en hún hefur verið óvenjugóð að þessu sinni. Ég held að það hafi ekki verið eitt einasta atriði, í öllum þeim ræðum sem haldnar voru, sem ekki er vert að skoða. Þetta er ekki löng grein hér, viðbót við 8. gr., sem er 1. gr. í frumvarpinu, en þar er reynt að draga fram þau lykilatriði sem þurfa að vera til staðar fyrir stjórn eins og þá sem markmiðið er að koma á. Auðvitað er markmiðið að styðja faglegan rekstur spítalans. Stjórnin er hugsuð sem stuðningur við forstjóra og starfsmenn spítalans, það er meginmarkmiðið. Það kom mjög glögglega fram í ræðunum hér að þetta er ekki klippt og skorið. Ég get alveg viðurkennt það, í undirbúningi þessa frumvarps, að þetta er flóknara en ég átti von á áður en sú vinna hófst. Ef við værum að tala um almennt hlutafélag á markaði hefði verkið verið mun einfaldara og fyrirmyndirnar mun skýrari, það er rétt og það hefur komið fram hér, þegar kemur að ábyrgðarskiptingu, ábyrgðarkeðju og hlutverki.
Ég ætla að reyna að draga fram það sem kom upp í þessari umræðu. Fyrst vil ég nefna ábyrgð og ábyrgðarkeðju forstjóra og stjórnar. Nú er það svo að kveðið er á um ábyrgð forstjóra í 38. gr. laga um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna, þar er sú ábyrgð alveg skýr. Nú er það svo að sá sem hér stendur hefur þegar skipað forstjóra á spítalann. Það útilokar það hins vegar ekki að gera breytingar á frumvarpinu og kveða á um að stjórn verði falið að ráða forstjóra. Auðvitað er það ákveðin leið til að skýra það boðvald sem í því felst að ráða forstjóra en það er rétt að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ábyrgð forstjóra haldist óbreytt og verði í samræmi við ábyrgð og skyldur.
Ég vil líka draga það fram, sem kannski kom ekki fram í umræðunni, að í 36. gr. laga um opinber fjármál er kveðið á um ábyrgð stjórnar sé hún til staðar hjá ríkisstofnunum og þá er það í samræmi við þau lög sem gilda um þá stofnun. Hlutverk Landspítalans er veigamikið og mikilvægt í okkar heilbrigðisstarfsemi. Í 7. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem þetta frumvarp er viðbót við, er þessari stóru einingu ætlað veigamikið hlutverk. Sú framtíð sem við horfum til í heilbrigðisþjónustu kallar á mjög stórar ákvarðanir. Í lögunum eins og þau eru í dag er talað um annars og þriðja stigs þjónustu þegar talað er um hlutverkið. Við vitum að þetta hefur þróast þannig að umfangsmikil þjónusta á fyrsta stigi fer þar fram. Verkefnin eru því í raun miklu umfangsmeiri en kveðið er á um í lögum hvað hlutverkið varðar. Það er mjög mikilvægt fyrir forstjóra að hafa stjórn með sér í slíkan leiðangur. Við erum að reisa risastóran meðferðarkjarna, gríðarlega viðbót bara í fermetrum. Við erum að taka utan um það frábæra starfsfólk sem er þarna, 6.000 starfsmenn. Það eru ekki margar rekstrareiningar á Íslandi viðlíka að umfangi.
Ég hvet hv. velferðarnefnd til að skoða ábyrgð forstjóra og stjórnar og að við reynum að teikna það inn í frumvarpið að stjórn komi að málum með forstjóra og taki á málum í samræmi við 32. gr. laga um opinber fjármál og fari yfir ársáætlun og starfsáætlun. Við þekkjum það, sem höfum verið á Alþingi, og ég tala nú ekki um við sem höfum starfað í hv. fjárlaganefnd, þegar við erum að kalla eftir upplýsingum um rekstur og fjármögnun, upplýsingum um það í hvað fjármunirnir fara, að þetta er mjög flókin starfsemi eins og komið hefur fram í fjölmörgum ræðum. Við þurfum því að huga að samspili forstjóra, stjórnar og ráðherra. Mikið hefur verið komið inn á innra eftirlit og ég tek heils hugar undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið inn á það. Þetta er afar umfangsmikill rekstur, eins og fram hefur komið er rekstrarumfangið hátt í 90 milljarðar á einu fjárlagaári. Ef við tölum um hagkvæmni, skilvirkni, öryggi og gagnsæi fjármuna þá þurfum við auðvitað að setja þetta eftirlit í gang eins og kveðið er á um í 65. gr. laga um opinber fjármál, um innra eftirlit og innri endurskoðun. Við þurfum að fá fram þetta kerfisbundna, óháða og hlutlæga mat. Það er nauðsynlegt. Það er líka nauðsynlegt tæki fyrir stjórn. Ég held að mikill akkur sé í því fyrir forstjóra að fá stjórn sem styður við það að koma þessu á laggirnar. Mér fannst mjög vel komið inn á það í ræðum hér.
Mikið var rætt um lýðræði og aðild starfsmanna og þá staðreynd, eins og málið er lagt upp í frumvarpinu, að um áheyrnarfulltrúa sé að ræða, eins og talað er um, þ.e. að þeir hafi ekki atkvæðisrétt. Svo er kannski ekki nægilega ljóst hvernig staðið skal að vali. Það eru auðvitað nokkrir valkostir í boði um það. Hægt er að kalla eftir því hjá fagráði sem var sett á fót með síðustu lagabreytingum. Ég held að það sé vænlegur kostur og ég hvet hv. velferðarnefnd til að horfa til þess. Þar sitja fulltrúar fagstétta á spítalanum, sem eru yfir 30. Ég held að það sé afar mikilvægt að hafa þessa tvo fulltrúa í stjórn. Það eru kostir og gallar við það, ef fólk starfar á gólfinu, að þurfa að greiða atkvæði með ákvörðunum. En starfsfólk tekur þá alltaf þátt í umræðunni og á innlegg, þetta faglega innlegg sem er svo mikilvægt í stjórninni. Við getum sett okkur í spor þeirra starfsmanna sem starfa á spítalanum, sitja í stjórn og horfast í augu við það að þurfa að greiða atkvæði með erfiðum ákvörðunum eða á móti og eiga svo að vera stuðningur við forstjóra á gólfinu í umræðu um þær ákvarðanir. Það eru kostir og gallar við þetta og ég hvet hv. velferðarnefnd til að horfa til þess. Á Karólínska sjúkrahúsinu í Svíþjóð er aðild starfsmanna með þessum hætti og notendaráð með svipuðum hætti. Það má líka hugsa sér notendaráð og ég tek heils hugar undir hvert orð sem hefur verið sagt hér hvað það varðar. Við förum þessa leið og það er til notendaráð með þessum hætti á Karólínska sjúkrahúsinu. Við erum svolítið að horfa þangað, það skal bara viðurkennt hér. Það kann að vera skynsamlegt að skoða hvort fulltrúar úr þessu notendaráði ættu seturétt í stjórn. Sú hugmynd kom upp í umræðunni og mér finnst vert að skoða það. Ég held að allt þetta sé mjög gott veganesti fyrir hv. velferðarnefnd. Þess vegna segi ég: Umræðan hefur verið mjög góð.
Stjórn yfir spítalann er ekki ný hugmynd. Við höfum farið margar leiðir eins og komið er inn á í greinargerð og kom fram í fjölmörgum ræðum hér. Við höfum verið með þetta fyrirkomulag en það var horfið frá því eins og við höfum rætt hér í dag og þegar við hófum þessa umræðu. Á endanum var ábyrgðin ekki nægilega skýr, það þurfti að skýra betur ábyrgðina og setja hana meira á herðar forstjóra. Það ábyrgðarsamband þarf að vera mjög skýrt. Nú erum við kannski að hverfa aftur til þess tíma en þó með kannski örlítið önnur markmið í huga. Veigamiklar ákvarðanir og miklar breytingar eru fram undan í heilbrigðisþjónustu ef okkur á að takast að ná utan um þær áskoranir sem eru til staðar, t.d. hvað varðar mönnun. Landspítalanum er ætlað það hlutverk að mennta okkar fagfólk. Ég tel að skerpa þurfi verulega, með tilkomu stjórnar, á hlutverki spítalans vegna þess að það er augljóst að hlutverk og ábyrgð stjórnar mun hanga mjög saman við lög um heilbrigðisþjónustu og hlutverk spítalans eins og kveðið er á um það þar. Það er rétt, sem kom fram, að svigrúmið markast svolítið af öðrum lögum í þessu verkefni stjórnar. Það mun líka reyna mjög mikið á spítalann, forstjóra, stjórnendur og stjórn, við stjórnun spítalans í stórum ákvörðunum hvað varðar t.d. samspilið við aðra þjónustuveitendur í heilbrigðisþjónustu um uppbyggingu hjúkrunarheimila, um aukna dagdvalar- og heimaþjónustu. Áætlað er að 740 legurými verði á nýjum spítala en þau eru rúmlega 600 í dag. Ef við gerum ekkert þarf 1.200 legurými innan fárra ára. Sú mynd gengur ekki upp. Hér kom fram í umræðunni að ekki væri ljóst hvernig svona stjórn myndi vinna. Myndi ég telja að stjórn spítalans kæmi inn í svona stórar ákvarðanir og væri til stuðnings þeim sem starfa á gólfinu alla daga, faglega og í flóknum aðgerðum? Ég er ekki í vafa. Það er nauðsynlegt að stíga þetta skref.
Virðulegi forseti. Ég vil hér í lokin fyrst og fremst þakka hv. þingmönnum fyrir að draga fram nánast allt það sem þarf að skoða í hv. velferðarnefnd. Ég hvet nefndina til að skoða allt það sem kom fram í þessum umræðum.