152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

heilbrigðisþjónusta.

433. mál
[18:23]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kærar þakkir fyrir þetta svar. Já, vissulega eru kostir og gallar. Það eru auðvitað kostir og gallar við allt saman og það er enginn að segja að þetta sé eitthvað einfalt. En mér þykir gott að heyra að verið sé að líta til nágrannalanda okkar og þess hvernig þetta er þar og vissulega er mikilvægt að horfa til þeirra. En þetta fjallar ekki um okkur hér í þessum sal, hvað okkur finnst um þetta. Ég held að það verði að eiga þetta samtal við starfsmenn og það er enginn að segja annað um atkvæðisréttinn en að honum fylgir mikil ábyrgð. Ég myndi bara vilja spyrja starfsmennina og þeirra fulltrúa hvort þau vilji ekki einmitt akkúrat fá tækifæri til að taka þessa ábyrgð, það á alla vega að ræða við þá áður en við förum að ákveða eitthvað eða álykta innra með okkur hvað okkur finnst um þessi mál. Starfsmennirnir sjálfir hljóta einfaldlega að eiga að fá tækifæri til þess að hafa síðasta orðið um þetta því að mér finnst þetta spurning um ákveðna virðingu gagnvart starfsfólkinu og lýðræði. Jafnvel þó að það eigi eftir að verða erfitt og það verði átök í kringum einstaka atkvæðagreiðslu þá er samt sem áður þarna verið að segja: Ykkar atkvæði skiptir máli. Þetta er bara svo stórt réttindamál í mínum huga. Alla vega skulum við ekki taka ákvörðun um þetta hér og að reyna að máta þetta við okkur. Við erum ekki starfsmenn Landspítalans, alla vega ekki í dag.