heilbrigðisþjónusta.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil ítreka það sem ég sagði hér að fulltrúar starfsmanna innan stjórnar aðstoða að sjálfsögðu og leggja sitt af mörkum við ákvarðanatöku með þátttöku í umræðum á fundum stjórnar. Við erum að ræða hér hvort þeir eigi síðan að hafa þennan atkvæðisrétt. Það er nú kosturinn við hina þinglegu meðferð og þann vettvang sem við þekkjum í nefndarstarfi að við köllum eftir umsögnum og sjónarmiðum og ég er þess fullviss að við fáum sjónarmið beggja. Ég reyndi það í undirbúningi þessa frumvarps og skoðaði hvernig háttur er hafður á þessu víða. Ég heyrði það líka hér í ræðum sem kom fram að víða er það þannig, ekki bara í heilbrigðisstarfsemi, að það er hefð fyrir þátttöku starfsmanna í samhengi við atvinnulífslýðræði og þá með fullan atkvæðisrétt. En ég hlakka til að sjá þær umsagnir sem koma um þennan þátt málsins við við umfjöllun hv. velferðarnefndar.