rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 87/2018, um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Frumvarp þetta var samið í heilbrigðisráðuneytinu í þeim tilgangi að setja skýrar reglur um heimildir til sölu, markaðssetningar og notkunar á nikótínvörum og fella þær undir lög um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Undanfarin misseri hafa heilbrigðisráðuneytinu borist fjölmörg erindi er varða nikótínpúða og fyrirspurnir um lagaumhverfi þeirra og hugsanlega leyfisskyldu fyrir sölu og markaðssetningu þeirra. Ráðuneytinu hafa einnig borist erindi frá eftirlitsstofnunum með vörum á íslenskum markaði þar sem stofnanir hafa lýst vandkvæðum á flokkun slíkra vara í núgildandi lagaumhverfi. Nauðsynlegt er að bæta úr þessu þar sem um er að ræða vörur sem geta innihaldið mikið magn nikótíns. Nikótín er ekki skaðlaust efni og talið gífurlega ávanabindandi. Hér skiptir máli að bæði innflytjendur og seljendur nikótínvara hafa kallað eftir því að reglur verði settar um slíkar vörur. Því er mikilvægt að um nikótínvörur sem eru markaðssettar sem tóbakslausar og eru komnar á markað á Íslandi gildi skýrar reglur. Einnig hefur borið á því að börn hafi neytt slíkra vara en það getur valdið eitrun ef nikótínmagn er mikið. Mikilvægt er að tryggja heilsu og öryggi barna með skýrum reglum um hvernig heimilt sé að markaðssetja og selja umræddar vörur.
Þá eru lagðar til breytingar á núgildandi lögum þar sem kveðið verður með sambærilegum hætti á um nikótínvörur og gert hefur verið með rafrettur og áfyllingar fyrir þær, m.a. um markaðseftirlit, bann við auglýsingum og aldurstakmörk. Hér er lagt til að sömu reglur gildi um aldurstakmörk fyrir kaup og sölu á nikótínvörum og þegar gilda um rafrettur og áfyllingar fyrir þær þannig að einungis einstaklingum 18 ára og eldri verði heimilt að kaupa og selja nikótínvörur. Þá er jafnframt lagt til að óheimilt verði að hafa á umbúðum nikótínvara texta eða myndmál sem geti höfðað sérstaklega til barna og ungmenna, t.d. með myndskreytingum eða slagorðum, og þannig mögulega hvatt til neyslu nikótínvara, líkt og þegar gildir um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.
Verði þetta frumvarp að lögum verður sett reglugerð um leyfilegan hámarksstyrkleika nikótíns í nikótínvörur og verður við þá vinnu litið til þess hvaða áhrif nikótín getur haft á einstakling. Í því sambandi skal gæta að því að upptaka nikótíns úr vöru sé ekki meiri en fæst af leyfilegum hámarksstyrkleika í rafrettuvökva, þ.e. 20 milligrömm á hvern millilítra. Það er samkvæmt gildandi lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir þær.
Nikótínpúðar hafa náð töluverðri útbreiðslu á mjög skömmum tíma. Það er mikilvægt að sporna við því að börn og ungmenni hefji notkun og ánetjist nikótínvörum þar sem dæmi eru um að börn hafi orðið fyrir eituráhrifum eftir að hafa neytt nikótínvara eins og áður hefur verið nefnt. Einnig hefur nýleg rannsókn sýnt að einn af hverjum tíu nemendum í 10. bekk grunnskóla notar nikótínpúða og samkvæmt niðurstöðum úr framhaldsskólakönnun frá Rannsóknum og greiningu notar um þriðjungur framhaldsskólanema nikótínpúða. Því er lagt til samkvæmt þessu frumvarpi að óheimilt verði að selja nikótínvörur í skólum og á öðrum stöðum sem ætlaðir eru til félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna og á heilbrigðisstofnunum og á öðrum stöðum þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt. Einnig að óheimilt verði að auglýsa nikótínvörur eða sýna neyslu þeirra í auglýsingum. Bann laganna við sýnileika vara á sölustöðum mun einnig ná til nikótínvara sem þýðir að slíkar vörur mega ekki vera sýnilegar viðskiptavinum á sölustöðum nema um sé að ræða sérvöruverslun. Notkun nikótínvara verður einnig gerð óheimil á tilteknum stöðum þar sem börn og ungmenni safnast saman, svo sem í skólum og öðrum menntastofnunum sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna.
Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar sem ætlað er að draga úr nýliðun og notkun barna og ungmenna á nikótínvörum og rafrettum og áfyllingum fyrir rafrettur. Nikótínvörur og rafrettur hafa notið mikilla vinsælda og er notkun þeirra útbreidd meðal barna og ungmenna. Á sama tíma og daglegar eða reglubundnar reykingar ungmenna hafa dregist saman hefur neysla þeirra á nikótínvörum og rafrettum farið vaxandi vegna innreiðar nýrra ávanabindandi nikótínvara á markað. Rannsóknir hafa jafnframt sýnt að bragðefni, sérstaklega nammi- og ávaxtabragð, spili stóran þátt í því hversu vinsælar rafrettur eru meðal barna og ungmenna og rök falla til þess að telja megi að hið sama eigi við um vinsældir nikótínpúða hjá ungmennum. Þessi bragðefni eru jafnframt talin leiða til þess að notandi líti á vöruna sem hættuminni. Þá eru vísbendingar um að ungmenni sem reykja rafrettur færi sig síðar yfir í tóbaksreykingar. Því er talið að lýðheilsusjónarmið krefjist þess að gripið sé til aðgerða til að sporna við framangreindri notkun ungmenna á rafrettum og nikótínpúðum. Í því skyni er lagt til að óheimilt sé að flytja inn, framleiða og selja nikótínvörur og rafrettur sem innihalda bragðefni sem höfða til barna, svo sem nammi- og ávaxtabragð.
Ekki er talið að gengið sé of langt með framangreindum takmörkunum því að eingöngu er verið að takmarka tiltekin bragðefni en hér er ekki verið að banna innflutning, framleiðslu eða sölu á nikótínvörum og rafrettum. Þær vörur munu því standa áfram til boða fyrir þá einstaklinga sem telja þörf á að styðjast við þær, til að mynda til að hætta tóbaksreykingum. Við þekkjum það, virðulegur forseti, að ýmsir hafa fært fram þau rök og jafnvel tekist að breyta neyslu sinni.
Lagðar eru til breytingar á ákvæðum laganna um eftirlits- og valdheimildir eftirlitsaðila. Í því sambandi eru lagðar til breytingar sem kveða á um upplýsingaskyldu framleiðenda, innflytjenda og söluaðila og afhending sýnishorna vöru til að sannreyna innihald og eiginleika hennar. Þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögunum er nauðsynlegt að eftirlitsaðili geti lagt bann við áframhaldandi notkun, sölu og dreifingu og geti lagt hald á vörurnar og fargað þeim á kostnað handhafa þeirra.
Jafnframt eru í frumvarpinu lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um viðurlög. Nauðsynlegt þykir að viðurlagaákvæði hafi fælingarmátt og varnaðaráhrif. Í ljósi notkunar og eiginleika nikótínvara og rafrettna og hve ríka ábyrgð framleiðendur, innflytjendur og söluaðilar bera er lagt til að viðurlagaákvæði laganna verði skýrð og efld. Í því sambandi er þremur nýjum ákvæðum bætt við ákvæði um dagsektir, stjórnvaldssektir og kæru eftirlitsaðila til lögreglu.
Þetta frumvarp var birt í samráðsgátt stjórnvalda og bárust umsagnir frá opinberum stofnunum, einstaklingum, framleiðendum, seljendum og hagsmunasamtökum. Var að miklu leyti tekið tillit til athugasemda sem bárust í gegnum samráðsgátt og er greint frá þeim breytingum í athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins í greinargerðinni.
Ég held að ég ljúki máli mínu, virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir meginefni þessa frumvarps og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. velferðarnefndar.