152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Forseti. Ég þakka ráðherra fyrir yfirferð þessa frumvarps en ég verð að segja að mér finnst það ganga of langt. Hér er vert að hafa í huga að um er að ræða vöru sem var búin til fyrst og fremst til að stemma stigu við neyslu tóbaks, sem allir eru sammála um að er miklu verra, en samt á að nota svipaðan regluramma og takmarkanir þrátt fyrir að gæði nikótínvara sé nauðsynlegur þáttur í því að minnka tóbaksnotkun.

Í greinargerð frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

„Með frumvarpi þessu er kveðið á um tilteknar ráðstafanir til að sporna við því að börn neyti vara sem innihalda nikótín, þar á meðal bann við sölu til einstaklinga undir 18 ára …“

Einhverjum gæti þótt það vera nóg, börn mega ekki kaupa þessa vöru, en svo er ekki. Það er gengið mun lengra með takmörkunum á bragðefnum og öðru sem hafa með sjálfsákvörðunarrétt fullorðins fólks að gera fyrir utan atvinnufrelsi, stjórnarskrá o.fl. Ég vil því leyfa mér að spyrja, forseti: Finnst ráðherra þetta ekki of langt gengið gagnvart sjálfsákvörðunarrétti fullorðins fólks?