rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir þetta andsvar. Það komu fram athugasemdir í samráðsgátt einmitt við þetta atriði, að hér væri verið að ganga of langt, og maður getur alveg velt því fyrir sér. Meginmarkmið frumvarpsins, ég held að við getum öll verið sammála um að það skipti máli að huga að lýðheilsu og ekki síst að huga að lýðheilsu barna og unglinga og neyslu þar vegna þess að þetta er skaðleg stefna. Hins vegar mætti alveg horfa til þess rökstuðnings sem hv. þingmaður kom inn á varðandi atvinnufrelsið þegar í lögunum er verið að setja aldurstakmark — en á hverju? Ég hefði alltaf haldið því til haga af því að hér eru tiltekin bragðefni (Forseti hringir.) og það eru rannsóknir sem segja að tiltekin bragðefni höfði til ungmenna. Þess vegna er þetta hér og það eru rök með því. (Forseti hringir.) Á móti kemur að ef þú ert búinn að banna 18 ára og yngri að versla vöruna (Forseti hringir.) þá er spurningin í raun og veru hvort það hafi þau áhrif sem ætluð eru.