rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður setti þetta í athyglisvert samhengi í lok ræðu sinnar. Ég held að þegar við erum að fjalla um börn og unglinga fyrst og fremst þá verðum við líka að minna okkur á að þetta er skaðlegt efni. Tilgangur og meginmarkmið þessa frumvarps í lýðheilsu barna og unglinga er alveg skýrt. Að meginefni til er verið að gera hvað? Það er verið að setja lög um það að 18 ára geti hvorki selt né keypt þessa vöru. Finnst okkur það óeðlilegt? Ég er ekki viss um það. Ég held að þeir sem eru að höndla með þessa vöru kalli eftir slíkum reglum. Ég held að allir þeir sem sinna lýðheilsu barna og unglinga geti tekið undir að það sé skynsamlegt. Hvort það gangi of langt, eins og hv. þingmaður ræddi í fyrra andsvari, finnst mér eitthvað til að rökræða. Það er líka verið að leggja bann við auglýsingum. Það er verið að setja auglýsingabann (Forseti hringir.) sem Neytendastofa mun hafa eftirlit með. Finnst okkur eðlilegt þegar verið er að flagga og höfða til þeirra að nýta þessar vörur? Það finnst mér ekki. Mér finnst þetta eðlilegt (Forseti hringir.) skref í lýðheilsu gagnvart börnum og unglingum sem verið er að taka hér. Það er ekki verið að banna einum eða neinum neitt sem hefur aldur til (Forseti hringir.) að neyta þessarar vöru.