rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegur forseti. Það má nú nefna margt sem væri hægt að koma inn á hér í andsvörum en ég kem kannski betur inn á ákveðna þætti í ræðu á eftir. En það er margt í þessu frumvarpi sem vert er að gera athugasemdir við. Ég ætla að staldra fyrst við það, á svipuðum nótum og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir gerði hér á undan mér, að óheimilt sé að flytja inn, framleiða og selja nikótínvörur og rafrettur sem innihalda bragðefni sem kunna að höfða til barna, svo sem nammi- og ávaxtabragð. Þetta á að setja í reglugerð til ráðherra um nánari útfærslu. Hvernig ætla menn að framfylgja þessu? Hver gerir það og hvernig verður það ákveðið hvaða bragð nákvæmlega á að höfða til barna og hvað ætlum við að gera t.d. með áfengistegundir sem eru með alls konar bragði? Það eru til tópasskot og alls konar drykkir sem eru slíkir en er samt sem áður heimilt að selja? Fyrir það fyrsta, hvernig ætla menn að fara út í alla þessa skilgreiningarleikfimi (Forseti hringir.) með nammi- og ávaxtabragð og bara bragðtegundir yfir höfuð? Hvaða bragð höfðar til fullorðinna og hvaða bragð höfðar ekki til fullorðinna heldur barna og ungmenna? (Forseti hringir.) Er ekki verið að ganga svolítið langt að heimila ráðherra að ákveða þetta allt í reglugerð?