152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:44]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni. Við stöldrum hér við þetta umdeilanlega ákvæði sem snýr að því að takmarka tiltekin bragðefni, nammi- og ávaxtabragð. Það er byggt á því að það eru rannsóknir sem benda til að það höfði frekar til barna og unglinga. Svo getum við auðvitað velt því fyrir okkur að verið er að setja aðrar reglur sem takmarka aðgang barna og unglinga að þessu og það er alveg hárrétt, eins og hv. þingmaður segir, að það er ekki skýr lína í þessu enda hafa aðrar þjóðir tekið skrefið alla leið og bannað bragðefni með öllu. Þannig er það. Það er auðvitað verðugt verkefni fyrir okkur öll og hv. velferðarnefnd að fjalla um. Í þessu samhengi, af því að nú hefur nikótín áhrif á framheilann sem er að þroskast til 25 ára aldurs, þá eru til þær skoðanir að miða við þann aldur. (Forseti hringir.) Þannig að nei, þetta er ekki einfalt. Og ég get tekið undir með hv. þingmanni, ég hef horft á þessa línu sem tekin er með bragðefnin. (Forseti hringir.) Hvað er nammibragð og hvað er ekki nammibragð? Við getum velt fyrir okkur bragði af tyggjói, hvað höfðar til barna og unglinga og þeirra sem eldri eru? (Forseti hringir.) Það er verðugt að skoða það, virðulegi forseti.