152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:47]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla ekki að standa hér heilagur og halda því fram að það sé ekki vandasamt verkefni að skilgreina hvað er nammi- og ávaxtabragð. Ég er hins vegar alveg staðfastur varðandi meginmarkmið þessa frumvarps og að meginefni til sé nauðsynlegt að stíga þetta skref þegar kemur að lýðheilsu barna og unglinga og að hafa regluverk um þessar vörur sem eru skaðlegar og sem eru, eins og ég held að flest okkar viti, gríðarlega ávanabindandi og þær valda hjarta- og æðasjúkdómum. En ég ætla bara að segja það hér, virðulegur forseti, að þetta var mikið rætt eða kom mikið fram í samráðsgátt hversu vandasamt það er raunverulega að draga línu í sandinn um það hvaða bragðefni höfða til barna og unglinga og hvaða bragðefni gera það ekki.