rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Já, ég verð að taka undir með öðrum sem hér hafa talað. Mér finnst gengið allt of langt í málinu. Það er virðingarvert að passa upp á börn og unglinga. Ég er þeirrar skoðunar að þegar við lítum til niðurstaðna Rannsókna og greininga, samfelldra rannsókna frá þeim síðan 1991, þá höfum við náð áfengis- og vímuefnaneyslu íslenskra ungmenna, sem var með því hæsta innan OECD, niður í það lægsta innan OECD. Og hvernig gerðum við það? Við gerðum það ekki með boðum og bönnum. Við gerðum það með forvörnum, ég trúi á þær og við sjáum það m.a. af reynslu okkar Íslendinga. Í meira en 30 ár höfum við náð áfengis- og vímuefnaneyslu niður með forvörnum. Hér finnst mér því hafa verið gengið allt of langt.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hefur hann djúpa sannfæringu fyrir málinu? Trúir hann því virkilega að hann hafi bæði ríkisstjórnarflokkana og allt þingið með sér í þeirri vegferð sem hann er lagður upp í?