152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:50]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir þessa spurningu. Já, hv. þingmaður, ég hef djúpa sannfæringu fyrir meginefni þessa frumvarps, meginmarkmiðum þess, að takmarka notkun. Get ég tekið undir með hv. þingmanni um að fræðsluhluti forvarnanna skipti líka máli, skipti miklu máli? Já, ég er sammála hv. þingmanni þar. Tel ég hins vegar að það regluverk sem við erum að leggja upp með hér sé góð umgjörð utan um sölu og framleiðslu og það að geta nálgast vöruna? Já, það er nauðsynlegt að hafa þetta regluverk. Eftir því hafa þeir sem versla með vöruna kallað. Þeir sem eru að selja vöruna hafa kallað eftir því að vera undir regluverk settir, að það séu reglur um þetta, (Forseti hringir.) um aldur, um auglýsingar, um sýnileika. Þetta er allt hluti af forvörnum, hv. þingmaður.