152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:51]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er ekki skýrara en svo að ekki er hægt að greina nákvæmlega hver skilaboðin eru í þessu frumvarpi. Ég vara við því ef við ætlum að niðurnjörva allt í lögum hvað þetta varðar. Ég trúi því að forvarnaleiðin sé sterkari. Reynslan hefur sýnt okkur að hún hefur skilað okkur verulega miklum árangri. Ég hefði miklu frekar viljað sjá — og það er kannski bara ólík sýn og ólík nálgun okkar, mín og ráðherra, — að við værum að ræða hér afglæpavæðingu og frumvarpið sem átti að koma fram núna á þessu þingi og að þetta frumvarp hefði verið dregið til baka þannig að við gætum farið að ræða þau mál líka. Ég vona að þingnefndin sem fær þetta mál taki sér mjög langan tíma í það og að hún afgreiði það helst ekki. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig var málið afgreitt úr ríkisstjórn? Nú er málið komið hingað á dagskrá og ég spyr hvort (Forseti hringir.) báðir stjórnarflokkarnir séu sannfærðir um að hleypa því í gegn, og ekki bara það heldur hvort tryggur (Forseti hringir.) meiri hluti sé fyrir málinu.