152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[18:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Finnst mér eðlilegt að það séu aldurstakmörk varðandi þessa vöru, eins og lagt er til í frumvarpinu, gagnvart börnum og unglingum? Já, það finnst mér. Mér finnst það bara sjálfsagt mál. Mér finnst ekki eðlilegt að grunnskólabörn labbi inn í búð og kaupi sér nikótín. Mér finnst það bara ekki eðlilegt. Finnst mér eðlilegt að það sé auglýsinga- og sýningarbann? Já, það finnst mér líka eðlilegt. Finnst mér eðlilegt að við séum að banna notkun þessara efna í grunnskólum, í íþróttaumhverfi? Já, það finnst mér líka eðlilegt. Við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að börn og unglingar séu ekki með auðveldum hætti að nálgast þessa vöru. Því miður segja rannsóknir og kannanir okkur að stór hluti barna og unglinga er að nota þessa vöru. (Forseti hringir.) Það má alveg skoða og ég hvet hv. velferðarnefnd til að skoða það sem hér hefur verið rætt (Forseti hringir.) varðandi bragðefni, aldurstakmörk o.s.frv. Hvað er gerlegt að gera? Hvað er skynsamlegt að gera?