rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Mér finnst hæstv. ráðherra örlítið vera að gera þeim sem hafa komið hérna upp og spurt spurninga upp þá skoðun að þau vilji ekki banna sölu nikótínpúða til barna. Það er enginn sem hefur haldið því fram í þessum sal. Það er mjög eðlilegt og í raun sinnum við lýðheilsuvörnum barna einmitt með því að banna sölu nikótínvara til þeirra. Hæstv. ráðherra nefndi líka hvort þau sem hafa komið hérna upp og spurt spurninga væru ekki sammála því að það ætti að banna nikótínvörur í grunnskólum. Það hefur enginn haldið öðru fram. Aftur á móti leggur þetta frumvarp líka til bann við notkun nikótínvara í háskólum þar sem er fullorðið fólk. (Gripið fram í.) — Öðrum menntastofnunum, það stendur öðrum menntastofnunum í frumvarpinu. Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra um að svara því hvort hann geti ekki séð einhvers konar vægari leiðir til að ná sömu lýðheilsumarkmiðum en að banna neyslu fullorðins fólks á vöru sem er skaðminni en tóbak og sígarettur.