rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Mig langar til að svara fullyrðingu hæstv. ráðherra vegna þess að í frumvarpinu sem við höfum til umræðu hér er talað um aðrar menntastofnanir og í 2. gr. laga um háskóla stendur: Háskóli er sjálfstæð menntastofnun. Það þarf þá alla vega að breyta þessu frumvarpi töluvert til að ná fram raunverulegum vilja ráðherra sé þetta ekki hann. En rökin fyrir banni gegn reykingum á opinberum svæðum er náttúrlega skaðinn sem þær geta valdið þriðja manni, utanaðkomandi aðila, með óbeinum reykingum og sá skaði er úr sögunni með nikótínpúðum. En þetta bann við ávaxtabragði fær mig til að velta fyrir mér: Er eitthvað annað en lýðheilsusjónarmið sem býr að baki þessu frumvarpi? Getur verið að hér sé ógnað samkeppnisstöðu landbúnaðarvörunnar íslenskt neftóbak, sem er alls ekki með ávaxtabragði eða neinu sem líkist því?