rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Hæstv. forseti. Ég þakka andsvarið og byrja á síðari hluta þess. Ég held að ég geti fullyrt að svo er ekki. Sú vara er kirfilega merkt á íslensku að hún sé skaðleg og við leggjum á verulega há tóbaksgjöld og það er ansi mikill verðmunur á þessum vörum eins og staðan er í dag. Ég hef hins vegar alltaf haldið því fram að þegar við bönnuðum erlent munntóbak, sem var sérstaklega framleitt til þess, hafi það orðið til þess að það varð veruleg aukning á sömu notkun á þeirri vöru, án þess að það hafi verið rannsakað til hlítar að það hafi verið ein af þeim ákvörðunum sem hafa leitt af sér alvarlega neyslubreytingu. En bara út af þessu með bannið í háskólunum þá stendur hér í 12. gr., með leyfi forseta:
„Notkun nikótínvara er óheimil í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og öðrum menntastofnunum sem og í öðrum húsakynnum sem ætluð eru til dagvistunar og félags-, íþrótta- og tómstundastarfs barna og ungmenna.“
(Forseti hringir.) Háskólar eru ekki … (Gripið fram í: Sjálfstæð menntastofnun.) Það er sjálfsagt mál (Forseti hringir.) að hv. velferðarnefnd fari vel yfir orðalagið í greininni og ég þakka hv. þingmanni fyrir að benda á það.