rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Frú forseti. Ég ætla ekkert að orðlengja þessa umræðu frekar við ráðherra með frekari diskúsjónum um þetta að öðru leyti en því að hvetja hann og hvetja hv. heilbrigðisnefnd til að skoða sérstaklega þetta ákvæði. Ég er ekki sannfærður um að þetta sé leiðin. Ég er raunar gagnstætt sannfærður um að þetta er ekki leiðin. Við eigum hins vegar, eins og ráðherrann vill ná fram með frumvarpinu, auðvitað að banna sölu á þessum efnum til barna. Þar gegna söluaðilar lykilhlutverki. Foreldrar, kennarar, íþróttaþjálfarar og allir þeir sem vinna með börnum gegna þar miklu hlutverki. En ég endurtek: Ég hvet ráðherra til að finna aðra leið að settu marki því að markmiðið er gott.