rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Mér finnst gott að heyra samstöðuna hér á Alþingi um lýðheilsu barna og unglinga. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við kjörnum þetta frumvarp við það göfuga markmið. Þetta eru vandmeðfarin efni og skaðleg. Sú leið hefur til að mynda verið farin í öðrum löndum, vegna þess að ef börn komast í þetta þá getur þetta valdið eitrunaráhrifum, að setja á barnalæsingar. Það eru ýmis viðfangsefnin í þessu. Í Finnlandi eru öll bragðefni bönnuð í rafrettum og hafa verið bönnuð frá því að vörurnar komu á markað. Í þó nokkrum nágrannaríkjum öðrum eru miklar takmarkanir á sölu og framleiðslu rafrettna sem innihalda bragðefni. Allar þjóðir eru að kljást við þetta. (Forseti hringir.) Ég bara tek undir tek undir að þetta er kannski það sem veldur mestum deilum í þessu og vandkvæðum og hvet hv. velferðarnefnd, eins og hv. þingmaður gerði, til að skoða þetta (Forseti hringir.) gaumgæfilega í samhengi við aðrar reglur sem verið er að setja þannig að við gefum ekki frá okkur meginmarkmiðið um lýðheilsu barna og unglinga.