rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Frú forseti. Það er náttúrlega hlutverk okkar hér á Alþingi að taka við frumvörpum frá framkvæmdarvaldinu og laga þau til þannig að við séum sátt við þau. Það væri nú gott ef við þyrftum ekki alltaf að vera að laga mikið af þeim. En því miður gerist það og ég held að í þessu ákveðna frumvarpi séu ákveðin atriði sem mega fara betur. Ég treysti því að hv. velferðarnefnd geri það. Annars tölum við bara enn meira í 2. umr. um þetta. Þá gætum við t.d. farið að telja upp þessar 207 tegundir og innihaldslýsingar á því áfengi í ÁTVR ef við þurfum að tefja málið enn þá meira. Ég vona að þess gerist ekki þörf heldur hlusti velferðarnefnd og ráðuneyti á þau rök sem hér koma. (JFM: (Gripið fram í: Ráðherra er að hlusta.)) Ráðherrann hlustar og ég treysti því að ráðherra haldi áfram að hlusta. Það þarf einmitt að laga bæði þetta og eins það sem bent var á í andsvörum við hæstv. ráðherra áðan, skilgreininguna á því hvar megi selja, að þetta séu menntastofnanir, að það sé ekki verið að banna þetta í háskólunum þar sem fólk sem hefur aldur til þess og ætti að geta keypt. Ég veit alla vega ekki um marga háskólanema undir 18 ára aldri. Það eru kannski einhverjir einstakir en ekki margir. Vonandi náum við að laga þetta og ég treysti því að þingið starfi saman í því þvert á flokka.