152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:30]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það eru ákveðnir punktar sem ég verð að koma inn á við 1. umræðu um frumvarp hæstv. heilbrigðisráðherra. Mikið er gert úr því að frumvarpinu sé ætlað að auka öryggi notenda á nikótínvörum og sérstaklega horft til barna í því ljósi en öðrum grundvallarspurningum um afskipti ríkisins af neysluvenjum fullorðins fólks er ekki svarað með fullnægjandi hætti. Frumvarpið ber þess merki að nálgast eigi vörurnar eins og um tóbaksvörur sé að ræða sem ekki er ástæða til. Neysla tóbaks hefur dregist verulega saman á síðustu árum og má m.a. þakka þann góða árangur fjölbreyttu úrvali nikótínvara sem innihalda ekki tóbak. Í greinargerð með frumvarpinu er því haldið fram að þessar nýju reglur muni ekki eyðileggja þann árangur sem náðst hefur og segir, með leyfi forseta:

„Mikið og öflugt forvarnastarf um skaðsemi tóbaksreykinga og vitundarvakning fólks um skaðsemi tóbaks hefur ekki síður skilað sér í að fólk ákveði að láta af tóbaksneyslu.“

Væri þá ekki eðlilegra, áður en gripið er til verulega íþyngjandi reglna, að láta reyna á almennilegt forvarnastarf í þágu barna og ungmenna áður en við leyfum þessari gegndarlausu forræðishyggju að grípa inn í hvaða vörur fullorðið fólk neytir? Mér finnst þetta ódýr leið til að leysa þann vanda sem neysla barna á nikótínvörum er.

Frumvarpið kveður svo á um bann við afhendingu og sölu til einstaklinga undir 18 ára. Hér í þessum sal hefur enginn gert athugasemd við þetta. Væri ekki líklegt að hér yrðu mjög fjörugar umræður eins og raun ber vitni ef þetta væri eina markmið frumvarpsins? Nei, frumvarpið gengur svo margfalt lengra. Sjálfsákvörðunarréttur fullorðinna er sniðgenginn og eina svarið sem við höfum fengið er hið göfuga markmið um að banna sölu til barna og unglinga. Höfum það á hreinu áður en lengra er gengið að mínir fyrirvarar snúast ekki um andstöðu við fyrrgreint bann heldur hvernig frelsi fullorðinna einstaklinga og stjórnarskrárvarið atvinnufrelsi er tjóðrað niður. Auk þess er bara fullkomlega eðlilegt og mikilvægt að við á þinginu eigum samtalið um hversu mikil afskipti ríkið eigi að hafa af almennum borgurum og neyslu þeirra á hinum ýmsu vörum. Hvenær ætlum við að ræða þetta og svara þeim spurningum hvert hlutverk ríkisins er á neyslu almennings?

Skorður eru settar í frumvarpinu á markaðssetningar og munu nikótínpúðar falla undir ákvæði núverandi laga um rafrettur, svo sem um auglýsingabann og sýnileikabann á sölustöðum. Þessu banni við auglýsingum á nikótínvörum sem boðað er í frumvarpinu verður ómögulegt að framfylgja nema í innlendum fjölmiðlum. Framleiðendur og seljendur nikótínvara geta fundið aðrar leiðir til að markaðssetja vörur sínar, svo sem á samfélagsmiðlum, erlendum fjölmiðlum eða í hlaðvörpum. Slíkt bann yrði því alltaf tilgangslaust og aðeins til þess fallið að draga úr auglýsingatekjum íslenskra fjölmiðla sem þegar standa höllum fæti. Við ættum því öllu heldur að stefna að því að afnema bann við áfengis- og tóbaksauglýsingum þar sem það þjónar ekki lengur tilgangi sínum þar sem Íslendingar eru hvort eð er berskjaldaðir fyrir þeim auglýsingum á erlendum miðlum og sér í lagi á samfélagsmiðlum.

Nú að máli málanna. Samkvæmt frumvarpinu verður óheimilt að flytja inn, framleiða og selja nikótínvörur og rafrettur sem innihalda bragðefni sem kunna að höfða til barna, svo sem nammi- og ávaxtabragð. Engin frekari útlistun er á því hvað kunni að falla þar undir og er slíkt mat háð huglægum mælikvörðum sem liggja ekki ljósir fyrir. Frumvarpið kveður hins vegar skýrt á um bann við afhendingu og sölu nikótínvara til einstaklinga yngri en 18 ára og bann við nammi- og ávaxtabragði myndi því fyrst og fremst hafa áhrif á og takmarka úrval sem stendur fullorðnum einstaklingum til boða, eins og ég sagði áðan. Stöldrum aðeins við hérna. Af hverju má fólk sem náð hefur lögaldri ekki velja vöru sem er bragðgóð? Áfengir drykkir og gosbjórar eru margir með góðu ávaxtabragði og engum dettur í hug að banna þá. Skyndibiti er jafnan óhollur og meginorsök offitu sem er meiri háttar heilbrigðisvandamál en er engu að síður bragðgóður. Engum með réttu ráði dettur í hug að banna hamborgara, franskar eða pítsur. Slíkar vörur eru líka grímulaust markaðssettar fyrir börn, beinlínis.

Virðulegi forseti. Erum við ekki komin of langt í forræðishyggju hér? Svo finnst mér líka nauðsynlegt að gera greinarmun sérstaklega á nikótínpúðum og t.d. sígarettum og vindlum sem hafa óumbeðin áhrif á heilsu annarra en þeirra sem neyta þeirra, sem er fullorðið fólk. Ef börn neyta slíkra vara eigum önnur úrræði til að taka á því en að skipta okkur af bragði vörunnar. Öflugar forvarnir og virkt hlutverk heimilis og skóla eru þar lykilatriði.