152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:36]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir afar góða ræðu og þarfa. Þar sem hún talaði um skaðleg áhrif annarra hluta, sætinda, er rétt að kannski kafa aðeins betur ofan í það hver eru skaðleg áhrif sykurs. Hann getur valdið efnaskiptakvilla í líkamanum, sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómum og svo má lengi telja, haft veruleg áhrif á lífsstílssjúkdóma sem eru gífurlegt vandamál sem við stöndum frammi fyrir að muni versna töluvert þegar fram í sækir. Þess vegna langar mig til að skapa smá umræðu um það. Hvernig værum við að ræða þetta mál ef til stæði að banna sykur með ávaxtabragði?