rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir skemmtilega spurningu um það sem mögulega gæti orðið mjög skemmtileg umræða. Við þekkjum umræðu um ýmiss konar leiðir í þessu máli, sykurskatt og slíkt, sem ég er bara alls ekki fylgjandi. Þetta gerir allt það sama, þ.e. að tjóðra niður frelsi einstaklingsins. Þar af leiðandi væri það heldur ekki vegferð sem ég myndi vilja fara í. Það er auðvitað göfugt markmið að sinna lýðheilsu allrar þjóðarinnar og fara í einhvers konar baráttu gegn sykurneyslu en ég held að það sé einmitt leiðin, ekki bannið heldur forvarnastarfið. Mér finnst það alltaf eiga að vera leiðarljós okkar þegar við erum að kljást við ný vandamál, nútímavandamál, að við þurfum að fræða betur. Við þurfum að eiga samtalið við börnin okkar og unglingana okkar og spyrja: Viljum við að þetta sé framtíðarvandamál? Ætlum við að grípa inn í fyrr? Já, þetta er skemmtilegra umræða.