152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:38]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir gott svar. Þarna kom hún að kjarna málsins sem eru forvarnirnar, að við getum náð þeim árangri sem hæstv. ráðherra vonast eftir að ná með frumvarpi sínu með sterkari og betri forvörnum. Við getum dregið úr neyslu ungmenna á skaðlegum vörum, sama hvort það er sykur, áfengi, tóbak eða annað, með því að færa forvarnastarfið nær heimilum og skólum. Þess vegna langar mig líka til að velta upp pælingunni um hvað það er sem gerir tóbak með ávaxtabragði svona miklu verra en áfengi með ávaxtabragði. Er nikótín með ávaxtabragði verra en áfengi með ávaxtabragði? Hvers vegna eru sérstök rök fyrir því að banna það en ekki piña colada?