152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:39]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega síðara andsvar. Ég segi það bara með þér að þegar við erum búin að stíga eitt skref og færa varnarlínuna aðeins lengra þá er styttra í næstu. Við þurfum því auðvitað að standa vörð um þetta, bara rétt eins og við erum að gera hér í þessum sal. Það er líka áhugavert að hugsa um að við byrjum þarna. Af hverju ættum við þá ekki að fara í áfengi og af hverju ættum við ekki að fara í skyndibitanum og allt þetta? Þess vegna er mjög mikilvægt að við eigum þetta samtal hér í dag og förum yfir þetta, að við séum sammála því að forvarnirnar séu leiðin og það að markmið frumvarpsins, sem er að vernda börn og unglinga, sé gott en leiðirnar séu galnar.