rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir eldmóðinn í ræðunni og ég vona svo sannarlega að við förum ekki að banna súkkulaði með rúsínum. Hér er frumvarp sem ætlað er að tryggja lýðheilsu. Hér er verið að fjalla um rafrettur og nikótínpúða. En mín spurning er sú: Ef við getum búið okkur til reglur í kringum það hvar og hvernig megi selja nikótínpúða og rafrettur erum við þá ekki bara komin með ágætisdrög að því hvar og hvernig megi selja áfengi? Það er enginn sem leggur það til hér að þessar vörur séu bara seldar af Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Það hefði kannski verið ágætisforvarnaleið vegna þess að enginn undir 18 ára aldri vill láta sjá sig inni í þeirri búð. En ég spyr: Þurfum við ekki að hætta ýmsu öðru, hvað eigum við að kalla það, forsjárhyggju, forræðishyggju þegar kemur að öðrum efnum, eins og t.d. áfengi, og nýta okkur það að hér er heilbrigðisráðuneytið búið að búa til ágætisreglur um hvernig eigi að halda utan um sölu á efnum og nota það til að búa til frumvarp um sölu á áfengi og gefa hana frjálsa? Mig langaði að vita hvað hv. þingmanni fyndist um það.