rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Herra forseti. Já, nú erum við farin að tala saman. Það er gott að finna fyrir miklum stuðningi við áfengismálið stóra. Hann leynist víða. Það er eins með þetta nikótínmál og með áfengismálið. Myndum við fara þá leið sem við erum að fara í dag með áfengi ef verið væri að finna það upp núna? Mér finnst það vera góð spurning sem við ættum að spyrja okkur oftar þegar við erum að setja regluverk utan um hluti og neysluvörur, hvort þær reglur sem eru gildandi í dag passi við það samfélag sem við lifum í núna. Eins og bara með áfengisverslunina. Það er áhugavert að pæla í því í samhengi við þetta sérstaka frumvarp. Við höfum frumvörp sem liggja fyrir í þinginu sem eru skref í réttu áttina. Ég myndi alltaf vilja ganga lengra en það er eins og með varnarlínuna sem við töluðum um áðan, að þú tekur eitt skref og þá gengur þú lengra. Það er eins með þessa múra sem við erum að reyna að brjóta niður. Við þurfum kannski bara að ná einum steini úr til þess að geta tekið alla hina líka. Ég er svolítið spennt fyrir þeirri vegferð sem við erum á í því og finn miklu meiri stuðning í samfélaginu við að við förum aðeins að opna meira og leyfa fullorðnu fólki að ákveða sjálft hvað það vill gera, hvaða vöru það vill neyta og hvað vöru það vill kaupa. Ég tek undir að það er rosalega skemmtilegt að pæla í því. Nei, enginn er að mæla fyrir því að ríkið eigi að selja nikótínpúða, enda væri það bara fásinna.