152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:47]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir alveg afbragðsfína ræðu. Hún kjarnaði nokkuð vel þær efasemdir sem ég hef um þetta frumvarp. Ég ætla svo sem ekkert að nota orðið efasemdir í því samhengi, ég er bara mjög einbeitt á móti alls konar hlutum sem þarna eru og ætla að koma betur inn á það á eftir. En hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir hreyfði hér við nokkrum ágætum hlutum, til að mynda því að það er örugglega mjög auðvelt að ýta svona máli í gegn: Er ekki allt í lagi að þetta sé bara svona? Breytir þetta eitthvað svo miklu? En þá erum við einmitt að búa til fordæmi fyrir því að ganga of langt í löggjöf á einhverjum öðrum sviðum þannig að það er mjög brýnt að stoppa verstu ákvæðin í þessum lögum.

En hv. þingmaður hreyfði hér máli sem ég vildi kannski aðeins fá smá spjall um. Það er þetta með textann eða myndmálið sem á að vera á dósunum. Ef við tölum t.d. um nikótínpúðana þá mega þeir ekki höfða sérstaklega til barna og ungmenna. Það er talað þarna um myndskreytingar eða slagorð og að ekki megi hvetja til neyslu nikótínvara og allt það. En síðan má ekki hafa dósirnar til sýnis í búðum. Það má bara hafa þær til sýnis eða í útstillingu inni í sérverslunum þar sem börn og ungmenni eiga ekkert erindi vegna þess að þau fá ekki afgreiðslu þar. Þannig að maður veltir fyrir sér: Þótt þetta ákvæði hljómi afskaplega vel og hafi göfugan blæ yfir sér, er ekki verið að ganga allt of langt þarna líka? Er ekki verið að gefa okkur einhver hughrif um að hér séum við nú aldeilis að hugsa um hag barna og ungmenna en í raun og veru sé ákvæðið bara fullkomlega óþarft? Er ekki óþarfi að hafa þetta ákvæði í lögunum?