152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:49]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þetta góða andsvar. Ég kom ekki sérstaklega inn á þetta í ræðunni minni, en ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni að setja þetta svona fram. Það að setja reglugerð um útlit og umbúðir svo það höfði ekki til barna er auðvitað bara háð huglægu mati á þessum mælikvörðum sem liggja ekki fyrir. Þeir munu og geta alltaf gengið óþarflega of langt og eru þar af leiðandi íþyngjandi fyrir framleiðendur varanna. Það er þess vegna sem við tölum um tjóðrað atvinnufrelsi, það eru þessir hlutir sem skipta þar máli. Ég er alveg sammála því að það er gengið óþarflega langt og ég set verulega fyrirvara við það sérstaklega. Og þetta með auglýsingabannið, mér finnst auglýsingabann eins og þetta vera barn síns tíma. Mér finnst við alltaf hafa miklu betri leiðir og það er talað um betri leiðir í því að bæta lýðheilsu ungmenna og barna. Af hverju fetum við ekki þá braut frekar en að fara í þessar óþarflega íþyngjandi reglur? Ég tek undir þetta með þingmanninum.