152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[19:52]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka síðara andsvarið. Já, ég get bara svarað þessu mjög þægilega: Við höfum gert fyrirvara við málið. Það er ástæðan fyrir ræðu minni hér í dag að við gerum mjög skýra fyrirvara við málið, ekki varðandi bann fyrir yngri en 18 ára, eins og kom fram í ræðu minni, en það er þetta með huglægu mælikvarðana, bragðið og umbúðirnar sem meika bara ekki sens, afsakaðu sletturnar. Þannig að það er auðvelt að svara þessu. Við höfum sett fram fyrirvara og ég treysti velferðarnefnd til að fjalla um málið af yfirvegun.