rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Herra forseti. Mig langar til að þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Varðandi fyrri hluta spurningarinnar þá er hann að tala þar um það sem við köllum framsal löggjafarvalds, sem þýðir að þegar ráðherra er falin heimild til að útfæra bann þá þarf að vera skýrt kveðið á um það í lögum hvert umfang og efni bannsins er. Nú er ég ekki dómstóll, en tilfinning mín við lesturinn á þessu er að þetta sé afar víðtæk heimild sem lagt er til að löggjafinn feli hæstv. ráðherra. Það þarf þá bara að skoða það sérstaklega við frekari meðferð málsins.
Varðandi hina spurninguna og mentólsígarettur hefur náttúrlega áður komið til umræðu að banna mentólsígarettur og ég er hræddur um að það standi til að banna að myntubragð af nikótínpúðum í þessu frumvarpi. Aftur á móti myndi bann á mentólsígarettum ekki gera nokkurn skapaðan hlut fyrir lýðheilsu ungmenna. Það myndi gera stórkostlega hluti fyrir lýðheilsu kvenna, 65 ára og eldri, sem ég þori að fullyrða að sé stærsti hópur kaupenda á mentólsígarettum á landinu.
En auðvitað þarf að viðhafa rosalega vönduð vinnubrögð þegar við erum að setja lög og passa að það séu ekki gloppur í þeim og það sé ekki verið að færa ráðherra einhvers konar vald til lagasetningar til að útfæra bönn sem síðan reynist ekki stoð fyrir þegar á reynir. Þess vegna finnst mér einmitt gott að við séum búin að grípa þetta svo snemma í umræðunni um þetta mál til að koma í veg fyrir að endanleg útgáfa laganna, (Forseti hringir.) samþykkt lög, verði með þessu móti.