rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni enn einu sinni fyrir spurninguna. Ég ætla ekki að standa hér og svara fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra en spurningarnar fundust mér vera sanngjarnar. Við þurfum að vera viss um að skilgreiningar ráðherra á þeim heimildum sem honum eru veittar í lögum liggi fyrir þegar lögin eru samþykkt. Frumvarpið sem við höfum hér til umræðu er nefnilega með nokkrum slíkum matskenndum heimildum til reglusetningar, t.d. í 8. gr.:
„Ráðherra skal í reglugerð kveða á um leyfilegan hámarksstyrkleika nikótíns í nikótínvöru.“
Það væri miklu eðlilegra að lögin myndu kveða á um hver hámarksstyrkleikinn væri. Ég vona að bætt verði úr því. Ég vona reyndar að lögin muni ekkert kveða á um hámarksstyrkleika svo lengi sem hann nái ekki þeim mörkum sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson nefndi í sinni ræðu hérna fyrr í kvöld, að geta gengið af fólki dauðu. Allt fram að því finnst mér eðlilegt að fólki sé heimilt að nota. Og jafnvel, ef við förum bara út í það, þá er fólki náttúrlega heimilt að skaða sig ótakmarkað svo lengi sem það veldur ekki öðrum tjóni.
Aðeins varðandi þessar reglugerðarheimildir. Við verðum að treysta því að þegar lögin eru samþykkt, að fólk sem les lögin viti rétt sinn, að það geti lesið lögin og byggt rétt á því, vitað rétt sinn og skyldur á grundvelli þess hvað stendur í lögunum. Hér erum við að ræða frumvarp sem hefur áhrif á stjórnarskrárvarinn rétt fólks til atvinnufrelsis. (Forseti hringir.) Við þurfum líka að skoða frumvarpið í því ljósi að það muni mögulega takmarka atvinnufrelsi að einhverju marki.