rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og tek undir með honum. Ég er sammála, mér finnst þetta asnalegt. Ég er alveg sammála því að að sjálfsögðu setjum við aldurstakmark á nikótínvörur eins og okkur þykir eðlilegt að gera þegar kemur að öllum vörum sem eru skaðlegar börnum. Við verðum líka að hafa í huga að hér erum við að ræða vöru sem er skaðaminnkandi úrræði í sjálfu sér. Þetta er vara sem dregur úr reykingum sem eru mun skaðlegri en þessar nikótínvörur sem við erum að ræða hér.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvert hann telji okkar hlutverk vera hér sem löggjafa. Það koma ofboðslega oft upp mál þar sem við sjáum það sem okkar hlutverk að reyna að stýra hegðun fólks með einhvers konar boðum og bönnum. Sérstaklega þegar kemur að neyslu og þá sérstaklega þegar við erum að tala um neyslu, þessa svona grundvallar — ekki þörf heldur sækir manneskjan, eins og öll dýr á þessari jörðu, í einhvers konar vímu. Það er bara þannig. Það er ekki ein einasta dýrategund á jörðinni sem sækir ekki í vímu. Mér finnst hafa sýnt sig að þessi þörf okkar til að setja boð og bönn til að stoppa þetta virkar ekki. Hvað er þá hlutverk okkar? Það hlýtur að vera að draga úr skaðanum af neyslunni frekar en að reyna að stoppa neysluna.
Mig langaði aðeins að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann lítur á okkar hlutverk þegar kemur að lýðheilsu og neysluhegðun fólks, fræðsla og forvarnir eða boð og bönn, hvað er að virka best?