152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[20:13]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen kærlega fyrir spurninguna. Ég held að hún hafi hitt naglann á höfuðið þegar hún talaði um að nikótínpúðar væru skaðaminnkandi vara þar sem þeir hjálpa fólki að draga úr neyslu skaðmeiri tóbaksvara. Við vitum það, eins og hefur verið rætt hér í kvöld, að tóbak veldur krabbameini. Nikótín gerir það ekki. Ég óttast það, verði þetta frumvarp óbreytt að lögum, að nikótínpúðarnir verði síður fyrir valinu, muni falla neðar í röð fólks sem er háð nikótíni yfir þá vöru sem það kýs að nota og að fleiri munu sækja í skaðlegri vörur á borð við rafrettur og sígarettur.

Mér finnst tvímælalaust vera hlutverk okkar að standa vörð um í sama mund valfrelsi og velferð almennings með því að hafna þessu frumvarpi eins og það lítur út núna. Það er okkar hlutverk, að mínu mati fyrst hv. þingmaður spyr, að við eigum að standa vörð um frelsi fólks, hagsmuni og velferð. Þegar þessir hlutir fara saman gerast kraftaverk. Ég held að það sem frumvarpið sem hér um ræðir geri er að það brýtur í bága við tvo af þessum þáttum verði það samþykkt óbreytt. Þannig að mér finnst, eins og ég hef sagt áður, gott að við séum að ræða þetta mál vel.