152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[20:15]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka þetta svar. Þetta er mjög áhugaverð umræða og skiptir rosalega miklu máli. Þetta snýst ekki bara um nálgun okkar heldur líka grundvallarhugmyndafræði, hvernig við lítum á hlutverk okkar hérna og hvernig við getum stýrt fólki í þjóðfélaginu. Í þessu frumvarpi kemur fram rosalega mikil forræðishyggja, sem og í mörgum þeim frumvörpum og þingmálum sem við erum að afgreiða hérna, og mér finnst persónulega við ganga allt of langt í að takmarka sjálfsákvörðunarrétt fólks í samfélaginu. Að mörgu leyti er komið fram við fólk eins og það sé börn sem geta ekki tekið skynsamlegar ákvarðanir í sínu eigin lífi. Ekki það að ég vilji tala illa um börn því mörg börn eru mjög skynsöm og mun skynsamari en margt fullorðið fólk.

Þegar hæstv. ráðherra talar um að það sé verið að banna brögð annars staðar í heiminum og bragðefni í sígarettum líka og alls konar tóbaksvörum, finnst mér áhugavert, og hefði kannski átt að spyrja ráðherra að því, hvort það hafi verið skoðað hvaða áhrif þetta hefur haft á svarta markaðinn í þeim löndum. Hvað gerist þegar við bönnum eitthvað sem er markaður fyrir og ásókn í? Fer þetta á svarta markaðinn? Ef við bönnum t.d. mentólsígarettur, er fólk þá að fara að smygla inn einhvers konar mentólvökva sem það hellir sjálft í tóbakið og blandar og þurrkar og rúllar sér? Hvernig getum við þá haft eftirlit með þessum vökva? Hvernig vitum við að hann sé öruggur fyrir fólk til að neyta því að þetta er komið á svarta markaðinn og við getum ekki lengur sett reglur utan um þetta?

Svo er annað og það snýr að því hvaða áhrif það hefur að setja lög sem við vitum að fólk mun ekki fylgja. Erum við ekki bara grafa einhvern veginn undan löggjafanum með því að setja lög sem við vitum að fólk mun brjóta?