rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen aftur fyrir góðar spurningar. Ég held að hún hafi snert dálítið mikilvægan hlut þegar hún talaði um löggjafarvaldið og að stýra fólki. Ég held að ríkisvaldið geri almennt of mikið af því að reyna að stýra fólki, reyna að stýra hegðun fólks. Ég held að það geti oft verið skaðlegra samfélaginu og einstaklingnum en hitt. Og eins og hún nefnir, hvað mun gerast t.d. ef nikótínpúðar með ávaxtabragði verða bannaðar þegar fullt af fólki hefur ánetjast þeim og sækir í þá? Við getum ímyndað okkur að það skapist markaður fyrir einhvers konar bragðbæti, bragðbætandi olíu sem fólk dýfir bragðlausu pokunum sínum ofan í — ég veit það ekki — þar sem erfiðara væri að hafa eftirlit með innihaldinu en í þeirri vöru sem er nú þegar regluverk og lagaumgjörð fyrir. Við erum í rauninni að opna Pandórubox af vandamálum í hvert einasta skipti sem við bönnum hluti. Þess vegna þurfum við að meta það af virkilegri kostgæfni þegar börnin eru til umræðu hvort þetta sé eina leiðin sem er fær til að takmarka skaðann, hvort þetta sé rétta leiðin og hvort við getum náð markmiðinu, eins og raunverulega markmiðið er í þessu frumvarpi, að draga úr skaðlegri hegðun ungmenna, bæta lýðheilsu ungmenna, hvort ekki sé hægt að ná því markmiði með öðrum og vægari leiðum en þeim sem lagðar eru til í frumvarpinu.