rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Herra forseti. Á undanförnum dögum hefur hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra orðið tíðrætt um það í fjölmiðlum að brýnt sé að breyta lögum um atvinnuréttindi útlendinga til að gera fólki sem hingað kemur í nokkuð stórum hópum og fær hér dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða þótt það eigi rétt á stöðu flóttamanns — að breyta lögum til þess að þau hafi rétt á því að vinna á landinu. Ég hlakkaði til, hafandi mikinn áhuga á þessum málum, þegar ég heyrði í morgun að á þinginu í dag hefði verið dreift frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuréttindi útlendinga. En aldeilis ekki. Hér er um að ræða breytingu á þessum lögum sem varðar einstaklinga sem flytjast til innan viðskiptafyrirtækis. Hér er búið að taka út úr frumvarpi frá fyrri ríkisstjórn, sem þá var lagt fram af dómsmálaráðherra eða innanríkisráðherra, ég man ekki alveg hvað hann hét, um ýmsar breytingar á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga — ekki ákvæðið sem hæstv. ráðherra hefur orðið tíðrætt um undanfarið að sé einna brýnast að breyta núna. Hver ætli ástæðan sé fyrir þessu?