rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.
Herra forseti. Þetta er alveg makalaust. Frumvarpið sem hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir nefndi, sem félags- og vinnumarkaðsráðherra lagði fram hér í dag, nær að sneiða svo snilldarlega fram hjá því sem skiptir mestu máli að koma með til þingsins að það er ótrúlegt. Hér hafa bæði fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í ríkisstjórn talað um að brýnt sé að breyta lögum þannig að atvinnuréttindi fólks, sem hefur hlotið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, verði tryggð. Það ákvæði var í 36. gr. frumvarps dómsmálaráðherra á síðasta vetri. Hérna leggur félags- og vinnumarkaðsráðherra fram 34., 35. og 39. gr. Hann tekur nánast alla opnuna þar sem þessi eina grein sem skiptir máli er, nema greinina sem skiptir máli. Er ástæðan sú að þau vilja halda þessum sykurmola inni í ógeðsfrumvarpinu svo að Jón Gunnarsson geti komið með það og troðið því ofan í stjórnarflokkana?