152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[20:24]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Þetta er merkilegt mál sem verið er að vekja athygli á hérna. Það er eftirtektarvert, ef við orðum það þannig, hvernig farið er með þingmál, og þá þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, hvernig farið er með þingið hvað varðar stefnumál eða í raun skort á stefnumálum ríkisstjórnarinnar sem rata inn í einhverjum bútum fram og til baka, ef þau gera það yfirleitt. Orð eins ráðherra eru kaffærð af öðrum ráðherrum og atriði sem margir kalla eftir hjá einum ráðherra birtast síðan ekkert á þinginu af þeirri klassísku ástæðu að neitunarvaldi er beitt. Ef fólk þekkir þetta ekki þá er þetta ákveðin gíslataka á málum þar sem einn flokkur í meiri hluta segir bara: Nei. Og þá eru hinir flokkarnir í meiri hlutanum bara lens með að geta lagt fram mál. Þetta hefur rosalega mikil áhrif á störf þingsins. Við fáum allt í bútum. Það er ekkert samhengi og það kemur niður á þingstörfunum.