152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[20:42]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég spyr mig og spyr raunar — kannski hefði ég átt að setja þetta fram sem fyrirspurn: Hvað hafa nikótínpúðar drepið marga og hversu mikið álag er á heilbrigðiskerfinu vegna nikótínpúða? Hér erum við að breyta flóknum og löngum lögum til að vinna í því að börn geti ekki nálgast þessa vöru. En á sama tíma erum við að gera mjög miklar takmarkanir á því hvað megi selja, hvernig megi selja það, vel út fyrir það sem kannski er einungis til að takmarka aðgengi barnanna.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hv. þingmaður hefur verið tengdur forvörnum af öðru tagi: Heldur hv. þingmaður að ef við settum jafn mikil skilyrði við sölu hluta eins og t.d. áfengis hefði það þau lýðheilsulegu áhrif sem verið er að reyna að ná með þessu?