152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[20:58]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur kærlega fyrir, það er gott að eiga skoðanaskipti um þetta allt saman. Mér fannst hv. þm. Berglind Ósk Guðmundsdóttir fanga þetta mjög vel í ræðu sinni fyrr í dag þegar hún fór í gegnum þessa hluti. Það er auðvitað þannig að ef við erum að hleypa þessu máli í gegn eins og það er er orðið svo auðvelt að nota það sem rökstuðning fyrir því að fara sömu leið á einhverjum öðrum sviðum. Það hefur engum manni dottið í hug — held ég, ég verð þá bara leiðréttur með það — að fara þá leið, af því að börn og ungmenni drekka áfengi þótt þau eigi ekki að gera það, að banna áfengi með bragðtegundum. Það hefur engum dottið það í hug, auðvitað ekki. Og af hverju skyldum við gera það í þessu?

Mér finnst, eins og ég var að kalla eftir í ræðu minni áðan, að ákveðið innra samræmi þurfi að vera í því hvernig við umgöngumst vörur sem eru fyrir langflesta venjulegar neysluvörur — þær geta vissulega verið skaðlegar en fólk metur það bara sjálft. Því finnst gott að nota þessar vörur og er tilbúið til að taka þá skaðsemi á sig en þetta innra samræmi verður að vera til staðar. Þegar við erum allt í einu komin fram með þetta frumvarp sem snýr að stórum hluta að nikótínpúðum og regluverkið er að sumu leyti orðið strangara en um áfengi finnst mér við vera á alveg svakalega miklum villigötum. Mér finnst það setja hættulegt fordæmi og mér finnst það opna á leið sem ég vona að menn fari ekki, þótt ég sé sjálfur hættur að drekka áfengi, þ.e. að fara að setja einhverja frekari skrýtnar girðingar um þá vöru sem fyrir flestum er neysluvara. Það er vissulega hópur sem notar þá vöru sér til skaða en það getur ekki alltaf verið útgangspunktur fyrir heildina alla.