152. löggjafarþing — 54. fundur,  22. mars 2022.

rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur.

450. mál
[21:00]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til breytinga á lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur. Staðreyndin er sú, sem við erum að horfa á, að aðgengi barna að nikótínvörum sem þessum er ótrúlega auðvelt. Það eru ýmsir að selja þetta, jafnvel í búðum eða á netinu, og kannski bara einhverjir einstakir söluaðilar, án þess að hægt hafi verið að grípa þá, koma á þá einhverjum böndum, enda ólöglegt að selja börnum þessar vörur. Ég skil þessa umræðu hér og skil þennan punkt, að hér sé verið að tala um forræðishyggju. Það er verið að tala um að banna fullorðnu fólki og það mun sannarlega verða þannig að þetta mun koma niður á valfrelsi fullorðinna. Þá verðum við aftur að hugsa: Hvað skiptir máli? Hverju erum við fullorðna fólkið tilbúin til að fórna? Erum við mögulega tilbúin til að fórna einhverju broti af valfrelsi okkar til þess að eiga möguleika á að vernda börn gegn nikótíni?

Þetta er spurning um hvernig við viljum forgangsraða. Það er alveg rétt að það er forræðishyggja í gangi og ég er manna fyrst til þess að vera á móti því að banna fullorðnu fólki eitthvað sem hefur ekkert að gera nema með það sjálft, því sannarlega erum við ekki að tala um að viðkomandi fullorðinn einstaklingur sem notar þær nikótínvörur sem eru til umræðu sé að skaða nokkurn annan en sjálfan sig, og þetta viljum við alls ekki. Okkur þykir þetta ekki smart. Við viljum einmitt að fullorðið fólk fái að velja sér hlutina, hafi frelsi til að gera það sem því sýnist, svo framarlega sem það stríðir ekki gegn lögum og svo framarlega sem það skaðar ekki aðra. En hér erum við í dálítið öðrum málum því að það er búið að sýna fram á að með því að flytja þetta inn, jafnvel þótt bannað sé að selja börnum þetta, og þá er ég að tala um einstaklinga undir 18 ára, þá er aðgengi bara mjög gott að þessu. Þetta er bara úti um allt. Og hvað eigum við þá að gera? Við verðum að grípa til einhverra ráða.

Nú tala ég sem fyrrverandi formaður Barnaheilla – Save the Children, til sex ára og ég get ekki talað öðruvísi, og ég er tilbúin til þess að gefa upp það val að velja bragð púða, „whatever“, með leyfi forseta, til þess að geta hugsað sem svo: Ókei, ég gef þetta eftir, en á sama tíma er ég líka að loka fyrir eða alla vega draga úr aðgengi barna að þessum vörum. Ég get lifað ágætlega með þá niðurstöðu, fullkomlega sátt við það, en það er alveg rétt, þetta er mikil forræðishyggja og við viljum ekki vera í þessu endalausa banni. En við gerum það kannski bara fyrir börnin.

Öll umræðan hér kvöld hefur meira og minna verið karp um bragð, nammibragð og ávaxtabragð. Á hvaða leið erum við að standa hér klukkutíma eftir klukkutíma og karpa um bragð? Við verðum fyrst og fremst að hugsa um börnin. Það er ekkert flóknara en það. Ef það þarf að loka fyrir þetta með þessum hætti þá gerum við það.

Ég hef verið að kíkja á umsagnirnar og þær eru auðvitað alla vega. Í umsögnum frá hagsmunasamtökum barna kemur fram mjög mikil ánægja með þetta en hagsmunaaðilar sölumanna nikótíns eru náttúrlega brjálaðir. Er það eitthvað til að vera hissa á? Heilt yfir er í þessum umsögnum nokkurn veginn almenn ánægja með þetta, þ.e. að við erum að þessu til að vernda börn.

Mér finnst það líka búið að vera svo mikið í umræðunni að ef þetta frumvarp verður að lögum þá muni þetta gerast og hitt muni gerast og það verður bara enn meira svona og enn þá meira hinsegin og þá kem ég aftur að því: Hvernig getum við vitað það? Við getum ekki vitað það. Ég man þá tíð þegar skyndilega var bannað að reykja á veitingastöðum. Almáttugur, það var búist við því að allt yrði brjálað yfir því að menn fengju ekki að reykja á veitingastöðum og börum. Maður sá það bara hreinlega ekki fyrir sér að þetta gæti orðið að veruleika, þetta var svo ótrúlega róttækt. Hvað gerðist? Jú, það voru einhverjir að stelast til að reykja á veitingastöðum og börum en síðan datt allt í dúnalogn og við erum alsæl með þetta. Ef maður heimsækir Færeyjar og fer á veitingastað er maður gjörsamlega að kafna af því að næsti aðili við hliðina á manni er með sígarettuna ofan í diskinum hjá manni. Varðandi þetta verður það mjög líklega svipað. Það verða einhver mótmæli, við viljum ekki forræðishyggju, við viljum ekki þetta bann, og allt hárrétt. En hvað gerist svo? Börnin munu ekki hafa eins auðvelt aðgengi að þessu, það verður auðveldara að ná utan um þetta og getum við ekki bara verið ánægð með það? Og einn góðan veðurdag verður ekki orð um þetta meir.

Með leyfi forseta langar mig að lesa úr umsögn Barnaheilla frá 151. löggjafarþingi og freista þess að við getum mögulega sett okkur í spor samtaka eins og Barnaheilla sem hugsa fyrst og fremst um hagsmuni barna umfram hagsmuni eða valfrelsi fullorðna fólksins. Hér segir, með leyfi forseta:

„Barnaheill hafa haft áhyggjur af því takmarkalausa aðgengi sem börn og unglingar hafa haft að nikótínvörum í almennum verslunum og vitað er að notkun nikótínpúða er afar algeng á meðal ungmenna og barna allt niður í grunnskóla.

Barnaheill kalla áfram eftir því að í greinargerð með frumvarpinu verði sérstaklega fjallað um verslun á neti og hvaða reglur skuli gilda um hvernig einstaklingar skuli sýna fram á að þeir hafi náð 18 ára aldri hyggist þeir kaupa nikótínvörur í gegnum vefverslanir. Að mati Barnaheilla er ekki nóg að leggja þá ábyrgð í hendur söluaðila eins og nú er gert ráð fyrir skv. greinargerð með frumvarpinu.

Um vefverslanir sem selja nikótínvörur þarf að kveða skýrt á um hvernig þær megi kynna vörur á netinu því vefverslanir geta jú verið aðgengilegar börnum. Við skoðun á vefverslunum sem selja rafrettur og nikótínvörur má sjá að engar takmarkanir eru á aðgengi inn á síður þeirra, engar tilkynningar um að aðeins þeir sem séu 18 ára eða eldri megi stunda þar viðskipti.“

Kannski eruð þið öll hér búin að lesa hverja einustu umsögn með frumvarpinu og þessa líka eða kannski flettuð þið fram hjá henni. Þið sem eruð að gagnrýna þetta og eruð á móti þessu og viljið ekki sjá þetta hafið kannski ekki mikið verið að lesa akkúrat þessa umsögn, ég veit það ekki, þess vegna langaði mig að lesa úr henni.

Ég vil bara forgangsraða hér. Ég vil að við setjum börnin ávallt í fyrsta sæti og höfum þarfir þeirra og hagsmuni ávallt að leiðarljósi þó að það kosti að við höfum ekki sama hundrað prósent valið í einhverju eins og þessu. Við munum lifa ágætu lífi áfram þó svo að við getum ekki gengið að þessum vörum eins og áður. Ef þið viljið eyða restinni af kvöldinu í að ræða bragð, nammibragð eða ávaxtabragð, þá bara verði ykkur að góðu.